Dýravinurinn - 01.01.1893, Qupperneq 50
46
sannað, að komist hristíngur á heilann við högg eða að mænan er skorin sundur,
þá hverfur meðvitundin hjá öllum skepnum (sjá Almanak fjóðvfl. f. 1894 bls. );
en fyrir því mannúðarverki, að skera mænuna strax í sundur, hefur sú hjátrú
staðið eins og þ>rándur í götu, að blóðið re.iini eigi eins mikið úr kjötinu, og blóð-
mörinn verði því minni, ef mænan er skorin fljótt sundur. Jeg hef opt heyrt
menn segja, »nú held jeg óhætt sje að skera á mænuna, henni er blætt út«, en
þetta er hugarburður einn, meðvitundin hverfur þegar mænan er skorin sundur,
en lífið ekki, það endist meðan blóðið storknar ekki eða rennur í æðunum. Ef
þessi hjátrú hefði við rök að styðjast, þá ætti líka minna blóð að renna úr öllum
þeim skepnum, sem eru rotaðar eða skotnar, en það er margreynt að svo er ekld.
Eins og gefur að skilja, er áríðandi, að skotið eða rothöggið komi í heil-
ann, hvorki ofar eða neðar, nje til hliðar. Á myndinni 1. og 2. er sýnt með kross-
3. mynd. 4. mynd. 6. mynd.
strykum og depil a hvar rothöggið á að koma á kú og hesta. Myndin 3.5sýnir
hvernig áðurnefnd Roms-helgríma er sett á nautgrip sem rota skal, og myndin 4.
sýnir helgrímuna sjálfa, hún er öll úr járni; járnspeldi þau sem eru til hliðanna,
eru á völtum, svo þau geta lagst að báðum vöngum, og halda fjaðrir helgrím-
unni fastri á höfðinu, svo eigi þarf að festa hana með böndum; efst er þverjárn,
sem á að leggja ofan á krúnu eða hnakka gripsins og getur færst upp og niður
eptir rifu og skrúfast þar fast sem hæfilegt er eptir stærð haussins, svo rotgadd-
urinn komi beint á þann depil, sem sýndur er á myndinni 1. og 2. Rotgaddur-
inn er ofarlega í miðri helgrímunni, og helst frá með gormmyndaðri fjöður; þegar
slegið er á fremri endann, gefur fjöðrin eptir, svo innri endinn geingur inn í heil-
ann. Myndin 5. sýnir hvernig á að halda hausnum á kúm eða uxum, þegar
slegið er.
Myndin 6. og 7. sýnir helgrímu E. Guðmundssonar á Hraunum, hún er
mjög óbrotin, en svo er opt, að það sem einfaldast er, er ljettast í tilbúníngi og
best til afnota. Helgríman er búin til af leðurblöðku, sem er Vk þuml. á leingd