Heimilisblaðið - 01.05.1955, Qupperneq 18
augu, hin var lagleg stúlka á
að gizka um tvítugt.
Það er óþarft fyrir mig að
lýsa henni frekar, en eitt er
víst, að ég verð að athlægi,
er ég skýri frá því, að
ég, sem aldrei á ævi minni
hafði hugsað um konur og var
nú orðfnn roskinn maður, varð
ástfanginn af stúlkunni — við
fyrstu sýn!
En satt er það samt! Ég sat
þama eins og ég væri heillað-
ur og gat ekki litið af stúlk-
unni. Einasta ósk mín var sú,
að finna eitthvert ráð til að
kynnast henni.
Á milli þátta opnaðist stúk-
an, og sá, sem inn kom, var
bróður- og fóstursonur minn!
- Hvað er að tama, og þú
ert hérna, frændi! sagði hann
og settist þegar á tal við stúlk-
una mína. Komst ég þá að því,
að þau höfðu kynnzt á dans-
leik.
Hann kynnti mig því næst
fyrir konunum sem „föður-
bróður“ sinn, og þær reynd-
ust mjög ástúðlegar. Stúlkan
vék sér undir eins að mér og
lét sem hún sæi ekki flauta-
þyrilinn hann bróðurson minn.
Þetta byrjaði vel, og var ég
ekki lítið hreykinn af því með
sjálfum mér, eins og nærri má
geta.
1 fám orðum sagt, frá kvöld-
inu því fór ég að hugsa um að
kvænast! Ég keypti mér nýj-
an frakka, lét skera hár mitt
og gerðist tíður gestur í leik-
húsinu, á hljómleikum o. þ. u.
1., alltaf í þeirri von að hitta
konurnar þar, og oft hittist
líka svo á.
Þetta var nú allt saman gott
og blessað. En óheppinn var
ég samt. Bróðursonur minn
var alltaf að flækjast fyrir mér.
Ef ég kom með fjóluvönd
handa Emilíu minni fögru, kom
hann ævinlega með rósir handa
henni. Ef ég ætlaði að fylgja
henni heim af skemmtun, sagði
hann alltaf: - Blessaður, vertu
ekki að hafa fyrir þvi, frændi
minn, ég skal taka af þér ómak-
ið, og svo gerði hann það.
Ég var oft í illu skapi við
hann út af þessu, og hann bar
ævinlega fyrir sig aldur minn.
í stuttu máli sagt lenti okkur
einu sinni við líkt tækifæri al-
varlega saman út af þessu.
Þegar hann, eldrauður í and-
liti, gaf mér í skyn, að það
væru engar líkur til að tvítugri
stúlku gæti litizt á mig, réði
ég mér ekki lengur fyrir reiði.
- Jæja, látum svo vera, sagði
ég, það er bezt að reyna það!
Ég veit mínu viti og geri það
sem mér sýnist. Ég er boðinn
til borgarstjórans í kvöld, og
frú Möller verður þar líka,
ásamt Emilíu.
- Ég líka! sagði hann ill-
kvittnislega.
- Já, einmitt, svaraði ég, þá
getum við látið til skarar
skríða. Ég spyr Emilíu, hvort
hún vilji mig, og þú mátt spyrja
hana fyrir þitt leyti fyrir mér.
Taki hún mér, verður þú að
láta þér það lynda. Taki hún
þér, er öll vinátta úti okkar
í milli.
- Frændi! æpti hann.
- Þegiðu! sagði ég. Ég er
fimmtugur, en þú ert hálfu
yngri og getur hæglega orðið
þrjú hundruð sinnum ástfang-
inn enn og hefur vafalaust orð-
ið svo oft ástfanginn áður. Ég
hef aldrei orðið það fyrr og hef
þvi forgangsréttinn!
- Já, en frændi, þú hefur
ekki einu sinni komið heim til
þeirra enn, hvað þá meira'
sagði hann enn á ný.
- Gerir ekkert til, svaraði eg>
taki hún mér ekki, er það þýð'
ingarlaust, taki hún mér, líður
ekki á löngu, þar til ég kem
þangað, — og svo tölum við
ekki eitt orð frekar um þett*
mál!
Við skildum í reiði í fyrsts
sinn, — ég fór heim og ætlað>
að vinna í nokkrar stundir áð'
ur en ég færi í samkvæmið. Ja'
— en hamingjan hjálpi roer'
Heyri ég þá ekki undir eins
frá hljóðfærinu: ,,Ó, Alexis!
Það var nú einmitt það, seH1
ég þurfti með!
Ég var fokvondur með sjálf'
um mér út í bróðurson mim1'
fokvondur út í sjálfan mig °£
hálf sá eftir því, að ég hafð'
verið að karpa við drengiP11'
Hver var orsök i öllu þessu ■
Hver var það annar en hljóð'
•
færisf jandinn þarna inn1 •
Hann flæmdi mig frá míuu
kyrrláta lífi heima hjá mér 1
leikhúsið og þaðan inn í þetta
ævintýri, og hann heldur áfraU1
að glamra, líklega þangað til
hann flæmir mig alveg út ur
húsinu.
Ég mundi nú reyndar ekk1
biia þar sem ungur eiginma°
ur, og sú hugsun sefaði reié*
mína að nokkru. Svo þeg®r
kvöld var komið, fór ég í boð
ið til borgarstjórans.
Frændi minn var komiI,ri
þangað á undan mér, og vor11
kveðjur okkar fremur kaldar'
Þegar Emilía kom, fegurri eí>
nokkru sinni áður, gekk
samstundis til hennar og g!1
*
um, að hann kæmist ekki a
- Ekki missir sá, sem fyrst'
ur fær, hugsaði ég með mér °-e
19
[106]
HEIMILISBLA9