Heimilisblaðið - 01.05.1955, Síða 22
legri og reiðilegri, og hann var
orðinn sótrauður í framan.
- Ég sit hér önnum kafinn
. . . byrjaði hann.
- Við skulum koma okkur
burtu! æpti Prisjagin.
I sama vetfangi heyrðist úr
næsta herbergi, sem auðkennt
var með skilti, er á var letrað:
M. F. Imeninski, svo voðalegt
öskur, að þeim fannst hjartað
frjósa í brjósti sér.
Dymar opnuðust og nýr
sjúklingur ruddist inn.
- Ég er búinn að fyrirbjóða
það þúsund sinnum, hrópaði
hann til sjúklingsins, sem kall-
aði sig Patrikejeff, að hver sem
hafa vill taki bílinn! Nú þarf
ég að nota hann, en þá er hann
horfinn!
- Við skulum koma okkur
burtu! sagði Prisjagin aftur og
dró Devotsjkin út með sér.
Bak við þá heyrðist æðis-
gengið öskur.
- Ég þarf að komast upp í
sveit, en bíllinn sést hvergi!
Skriffinnarnir hlupu eins og
fætur toguðu niður stigann og
hnigu magnþrota niður á bekk
í anddyrinu.
- Púha! sagði Prisjagin. Fyrr
skal ég láta hengja mig en ég
stígi nokkurn tíma framar
fæti mínum inn í vitlausra-
spítala. Við vorum staddir í
yfirvofandi lífsháska.
- Já, ég vissi það, svaraði
Devotsjkin mannalega, en ég
vildi ekki segja þér það, til þess
að gera þig ekki hræddan.
Klukkan í anddyrinu sló
fjögur. Og á sömu stundu tóku
sjúklingarnir uppi að ryðjast
fram að fatahenginu með
skjalamöppur undir handleggj-
unum eins og heil hjörð af
bísonuxum.
Devotsjkin og Prisjagin
þrýstu sér ‘skelfingu lostnir
upp að veggnum. Þegar sjúk-
lingarnir voru komnir út á
götu, dró Devotsjkin andann
léttar og sagði:
- Nú fara þeir út, til að fá
sér ferskt loft. Það er afbragðs
fyrirkomulag á öllu hér á hæl-
inu. Reglusemin er til hreinn-
ar fyrirmyndar.
Þegar vinirnir komu út á
götuna, komu þeir auga á
skilti, sem þeir höfðu ekki tek-
ið eftir, þegar þeir komu.
r-------------------------\
SILOSTAN
V otheysvinnsluf élag
L_________________________j
En þar sém þegar var orðið
áliðið dags, og greinin um fá-
vitahælið átti að vera tilbúin
fyrir kvöldið, lýstu vinirnir
samvizkusamlega öllu þvi, sem
þeir höfðu séð og heyrt, og
kölluðu greinina ,,I heimi fá-
vitanna".
Greinin var prentuð í ,,Tima-
riti um taugasjúkdóma fyrir
almenning", og þótti með af-
brigðum góð. Hinn mikilsmetni
geðveikralæknir Titanusjkin
skrifaði ritstjórninni á þessa
leið: - Ánægjulegt að lesa
grein, þar sem athöfnum og
framkomu fávitanna er lýst
svo rétt og ýtarlega sem hér
er gert.
Þegar Kristur sigraði Satan, sigr-
aðist hann á óttanum. Þegar mað-
urinn skipar sér við hlið Krists,
hverfur óttinn. Romano Guardini.
Hið sanna hugrekki hlýtur að vera
í því fólgið, að sálin sé að þvi kom-
in að yfirbugast — en yfirbugist þó
ekki. G. K. Chesterton.
Brúðhjónin á heimleið.
HEIMILISBLAP,l)
[1103