Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Side 63
IÐCNN1
Heimsmyndin nýja-.
305
Lífið þolir, eins og kunnugt er, ekki mikinn hita
fremur en kulda og því verður það einungis til í
skauti hinna dimmu hnatta á vissu þroskastigi þeirra.
Þannig mundi mest alt líf hverfa af jörðunni við
56° hita, þótt einstöku biðgrór jurta og dýra þoli
miklu meiri hita, þó nokkuð langt upp fyrir suðu-
mark. í 46° liita mundu öll spendýr og fuglar deyja.
Og flestar aðrar dýrategundir mundu þá dauðar fyrir
löngu, sem sé við 25—30° hita, sem er töluvert fyrir
neðan blóðhita mannsins. Þannig getur ekkert, sem
lifs er, þolað mikinn hita, og það af þeirri einföldu
ástæðu, að lifefnasamböndin, sem í því eru, taka þá
þegar að sundrast og leysast upp. En af þessu leiðir
aftur það, að upptaka lífsins hér á jörðu er ekki
heldur að vænta fyr en jarðhitinn er orðinn tiltölu-
lega lágur.
Nú hafa sandsteinslög þau, sem fyrstu minjar lifs-
ins hér á jörðu hafa fundisl í, áreiðanlega ekki
myndast fyr en orðin var skifting láðs og lagar og
jarðhitinn því var kominn niður fyrir suðumarkið
(100° C.). En að fyrstu minjar lifsins hafi þó fund-
ist í þessum jarðlögum, sannar aftur á móti það, að
lífið og lífsverurnar komi til sögunnar liér á jörðu
undir eins og þeim er orðið lífvænt, undir eins og
jarðhitinn leyfði, að svo flókin lífefnasambönd, sem
í þessum verum eru, yrðu til. En lífið þurfti aðdrag-
anda og undirbúning, áður en það yrði til. Áður en
sjálfar Iífsverurnar urðu til, urðu að verða til líf-
efnasambönd, er gerðu lifsverunum það kleift að
verða til og halda lífi, eftir að þær voru orðnar til.
Og nú er það eftirtektarvert, að í jarðlögunum,
sem mynduðust um það bil og rétt áður en lífsver-
urnar koma í ljós, finnast ýms ólífræn fjöleindasam-
bönd, er myndast hafa í hinum volgu höfum. Eru
þetta einkum aluminium- og silicium-sambönd,
sem enn má finna i leir- og sandsteinslögum. En af