Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Page 82

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Page 82
324 Ritsjá. [IÐUNN vel hjá hverju góðskáldi og pá ekki sízt Sorgardans, sem er eitl bezta kvæði bókarinnar. Gestur á þakkir skilið fyrir það, hvað hann hefir unnið úr ísl. þjóðkvæðum og sögum, þó liann sé hvorki sá fyrsti, sem það gerir, né heldur alstaðar sá bezti, enda hefir hann spreytt sig á nærri öllum flokkum þjóðkvæða. Rað hefu borið nokkuð á þeirri skoðun, að ekki mætti hrófla við þjóðkvæðunum — þau nytu sín bezt eins og ómyntað guH- Nokkuð er þetta sjálfsagt sprottið af hinni röngu skoðun á upjiruna þeirra og eðli, sem rómantíkin hélt fyrst fram, •en vísindin hafa nú hrundið. Og sannleikurinn er sá, að þó margt í þeim sé skínandi gull, er líka margt í þeim lcir eða hrotasilfur, sem má smíða úr gersemar með þvi að bræða það upp. Gestur heflr reynt það og farið tvær leiðu'- Aðra þá, að taka einstök brot og yrkja áfram utan um þaU í sama anda, en hina, að taka ýmsar mismunandi útgáfur af sama kvæðinu og sníða upp úr því eitt kvæði. Þetta er næst aðferð vísindanna og hefir Axel Olrik verið manna snjallastur í þessu og væri ekki vanþörf á, að einhver tæki að sér að raða svipað til í ruslakistuútgáfunum af ísl. þjóð* kvæðunum. Á þenna seinni hátt hefir t. d. Tristam °f> ísodd orðið til hjá Gesti og er það sennilega lakasta kvæðið í þessum flokki. Viðkvæðum hefir liann víða vikið við eða breytt, en ekki ávalt til bóta. Fyrri aðferðin heflr þó aó jafnaði verið skáldum kærari og eru mörg af beztu kvæð- um nýnorrænnar ljóðagerðar orðin til á þennan hátt, t. d. Agnete og Havmanden eftir Baggesen, upp úr samnefndu, upprunalega slafnesku kvæði, og Ingalilla Frödings upp ur þjóðvísunni um Inga liten kvarnpige. En þegar svona er að farið, er ekki ástæða til að binda sig eins við ljóðstafi eða Ijóðstafaleysi þjóðkvæðanna og Gestur gerir víða. Þá má drepa nokkrum orðum á þýðingar Gests eða berg- mál. Yflrleitt eru þær ekki mjög nákvæmar að orðalagi og gerir það minna til, ef andinn er sá sami. En því skeikar stundum, t. d. í Árnasöng, þar sem viðkvæðið: over (le hoje fjælde, er þýtt: langt yfir liolt og hæðir, en með þvl er kvæðið losað við eðlilegt samband sitt við anda sög- unnar í kring, sem cinmitt lýsir þrengslunum í dalnuni og þránni »upp yflr fjöllin háu« eins og Þorst. Gíslason heflr

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.