Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1931, Side 50
44
Vísindal. aðferð til samtals við íbúa stjarna. iðunn
stundum verið skemtilega skýrir og greinilegir. Um
likt leyti og bréf mitt kemur til prófessorsins, fær hann
septemberheftið af Zeitschrift fiir Parapsychologie; er
það timarit mjög merkt, og standa að því margir vís-
indamenn, náttúrufræðingar ýmiskonar, heimsp-ekingar
og læknar; ritstjóri er dr. P. Súnner, yfirlæknir. i pessu
septemberhefti er nú (S. 557- 59) ritgerð, sem er stór-
þýðingarmikil fyrir þetta sambandsmál, og hefði getað
verið prófessornum, sem ég gat um í upphafi, ágæt
hjálp til að átta sig á þvi, hversu merkilegt tilboðið
var, sem hann hafði þá fengið frá mér. I ritgerð þess-ari
segir Hans Schubert frá stórfróðlegum sambandsfund-
um. Þegar miðillinn er sofnaður (trance), klappar hann
á hné sér, snýr sér að hr. og frú F., sem þar eru stödd,
og segir: „Þekkið þið mig ekki?“ Kveðst hann vera
Gustav M., gamall kunningi þeirra hjónanna. F. kann-
ast viÖ manninn, og voru þó 15 ár síðan hann hafði
séð hann; en fyrir 20 árum höfðu þeir verið saman í
söngfélagi, og einmitt það mun hafa átt líklega drýgst-
an þáttinn í 'því, að Gustav M. gerir þarna vart við sig:
hann „kemur þarna í“ miðilinn, verður draumgtafl mið-
iisins fyrir stilliáhrif síns gamla samsöngvara. Ekki
þekti miðillinn þennan Gustav M„ og hafði aldrei heyrt
hans getið. Gustav M. segir nú ýmislegt af sér og sín-
um högum á þessum fundi og öðrum seinni, en F. held-
ur, að það sé andi kunningja síns dáins, sem við þau
talar. Þegar Gustav M. verður var við þetta, þá mót-
mælir hann því harðlega, að hann sé dáinn, kveðst vera
sofandi heima hjá sér, og sé |rað siður sinn að fara að
sofa kl. 8. Eftir þessa fundi fer svo H. Schubert og þau
F.-hjönin og leita uppi Gustav M. Finna þau hann sitj-
andi í hægindastól sínum, og nærri blindan. Hafa þau
alia nauðsynlega varúð við, láta ekkert uppskátt uim