Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1931, Qupperneq 54
48
Hvað veldur kreppunni?
IÐUNN
finningár, aukin vélanotkun og bættar ræktunaraðferðir.
Pessi (rróun framleiðslunnar gengur sinn eðlilega gang,
nema pví að eins að stórfeld náttúru-umbrot eða styrj-
aldir grípi inn og trufli hana.
Þannig var í Bandaríkjum Norður-Ameríku fram-
leiðslan 50<>/o meiri á fyrra helmingi ársins 1929 en á
sama tíma árið 1919, prátt fyrir jrað, að tala vinnandi
verkamanna hafði lækkað um 7 ö/0. Á árinu 1929 fram-
leiddn 6 menn jafnmikið og 10 menn árið 1919. Það
kemur einnig í ljós við nánari athugun, að pessi vöxtur
framleiðslunnar fellur engan veginn allur á iðnaðar-
vörur. Framleiðsla hráefna og matvæla liefir líka auk-
ist gífurlega. Á tímabilinu 1925 28 óx jiannig heims-
framleiðslan af tíu tegundum nauðsynjavara: hveiti,
baðmull, kolurn, járni, sykri, olíu o. s. frv. um 16%,
en á sama tíma nam mannfjölgunin ekki nema 4°/o. Af
þessu má sjá, að efnalegur auður mannkynsins ér í
hröðum vexti, og að nú er fyrir hendi tryggur grúnd-
völlur undir varanlega umbót á lífsskilyrðum mann-
fólksins yfirleitt. Hin aljrekta kenning Malthusar, um að
afrakstur jarðarinnar aukist ekki að sama skapi sem
fólkinu fjölgar, sýnir sig að vera alröng eins og nú
standa sakir. Og alt bendir til [>ess, að framleiðslan á
hvern vinnandi mann muni halda áfram að aukast í
náinni framtíð. Á jrví er enginn vafi, að enn er hægt aö
komast mikið lengra í hagkvæmri skipulagningu hvers
konar atvinnureksturs og með jiví auka framleiðsluna.
1 dag er ástandið jiannig, að tala má um offram-
leiðslu á nær öllum sviðum, Það er fylsta ástæða til
að ætla, að hin lítt viðunandi kjör, sem almenningur á
við að búa, eigi sér alt aðrar orsakir en jiær, að iðnað-
ur, landbúnaður o. s. frv. megni ekki að framleiöa svo
mikið, að lífskjörin gætu veriö betri. Þrert á móti; |>að