Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1931, Page 98

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1931, Page 98
92 Bækur 1930. iðunn: hafi ofurást á slikum strikum. En ég vil vona, að þessi höf. komi aftur að ári, og verði þá tvíelleftur. Þá hefir Stanley Melax gefið út fjórar smásögur undir samnefninu Einbúar. Sami höf. gaf úi fyrir nokkrum ár- um P r j cí r g a m a nsö g u r, sem ekki voru sendar Ið- 'unni fyr en nú. 1 þeirri bók var að minsta kosti ein sagan — „Finna fjósakona" — eftirtektar verð, þótt tæplega gæti hún kallast gamansaga. Ekkert í þessari nýju bók stendur Finnu á sporði. Einna bezt held ég að sé fyrsta sagan, af Sigmundi Greipssyni, einrænum karli og hranalegum, sem hefir orðið fyrir óláni í ástamálum, en sýnir það áður en lýkur, að til eru í honum góðar taugar. Yfirleitt eru þessar sögur ákaflega „velmeintar", en pað eitt nægir ekki til að gera þær að skáldskap. Þessi höf. ætti helzt að loka prest- inn inni í klæðaskápnum, þegar hann er að skrifa sögur- Það er slæmur predikunartónn sums staðar í þessari síð- ustu bók hans, en það voru Gamansögurnar lausar við. Skáldkonan Huldu hefir gefið út ellefu æfintýri: Bardu m i g ii p p til sk // / a — með f jölda af góðum teikningum,, sem ekki verður séð, hver hefir gert. Um þessa bók skal ég varast að segja nokkuð, hvorki til lasts né lofs. Það þyrfti meira en meðal-fúlmensku til þess að reiða hnúta- svipu gagnrýninnar að þessum gullfallegu, hárómantísku og dauðmeinlausu æfintýrum, sem eru svo fjarlæg hinu stríðandi og stritandi lifi dagsins í dag, að lesandinn oft og einatt hyggur sig horfinn upp á eitt af tunglum Júpíters. Stúlkubörn hafa sennilega gaman af að lesa þau, en livergi er þess getið sérstaklega, að þau séu börnum ætluð. Af þýddum skáldsögum hefir Menningarsjóður gefið út eina — Pierre Loti: Á I s l a n d s m id u m. Vekur það nokkra undrun, að þá er Menningarsjóður réðst i að gefa út erlent skáldrit, skyldi fyrst verða fyrir valinu hálfrar aldar gömul bók, sem að listrænum vinnubrögðum er vitan- lega orðin nokkuð úrelt, þótt ýmislegt kunni að vera vel uin hana. Islandi kemur hún lítið við, nema að nafninu einu. Væri óskandi, ef Menningarsjóður ætlar að halda áfram út- gáfum erlendra skáldrita, en á því væri hin brýnasta þörf, að þá yrði valið úr því bezta, sem skrifað er mi á dögum. Væri t. d. ekki úr vegi að gefa íslenzkum lesendum kost á að kynnast einhverjum af Nobelsverðlaunahöfundum síð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.