Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1931, Side 100
94
Bækur 1930.
iðunkt
Sigurbjörnsson hefir gefið út Jirjá einþáttunga — Þrír
p Œ ttir. Hann er nýr höfundur í íslenzkum bókmentum,
en fyrir nokkrum árum gaf hann út smásögusafn á dönsku.
Mun það hafa hlotið góða dóma, en ekki hefi ég séð það.
Um þættina er það að segja, að þeir eru ekki ólaglegir
og myndu sennilega .vel hæfir til sýninga. Einn þeirra —
„Stiginn" — er mjög yfirlætislaus og óbrotinn, að eins
tveir leikendur, piltur og stúlka, sem fylgjast að frá danz-
leik heim á herbergi piltsins, og er leikurinn samtal þessara
nýnema í stafrófi Amors. I öðrum þessara þátta — „Reki“
— er talsverður dramatískur kraftur, en annars er sá
þáttur nokkuð með ólíkindum og sýnir, að höf. er ókunn-
ugri sveitafólki en bæja, enda mun hann vera bæjarbarn.
Hitt leikskáldið er Guttormur J. Guttorrnsson hinn vest-
ur-íslenzki, sem áður er getið. Hann lætur frá sér fara
ekki færri en T íu leikrit, er Þorsteinn Gíslason gefur
út. Leikir hans eru næsta æfintýralegir og fullir af tákn-
rænu (symbolik), sem stundum hittir markið, stundum ekki.
Engu vil ég um það spá, hvernig þeir myndu fara á leik-
sviði, en ýmsar góðar hugmyndir er í þeim að finna og
sums staðar snarpar ádeilur. Leikritin bera þess merki —
öllu íneira en kvæði hans — að þessi höfundur er ekki al-
fnn í íslenzku andrúmslofti. Nöfn leikritanna ein bera vitni
um það — eins og „Hinir höltu" og „Hver er sá vondi?"
III. AÐRAR BÆKUR.
Einstakir menn, sem fást við bókaútgáfu hér á landi,
heyra bráðum sögunni til. Menn, sem fyrir nokkrum árum
létu allmikið lil sín taka á því sviði, virðast alveg vera aö
gefast upp, sennilega af engum öðrum ástæðum en þeim,
að útgáfustarfsemin hefir reynst þeim lítið arðvænleg at-
vinnugrein. Nú er svo komið, að flest skáld og rithöfundar
hér á landi eru að basla við að gefa út bækur sínar sjálfir,
þótt þá skorti flesta bæði fjárhagslegt bolmagn til siíkra
liluta og þekkingu á þvi sviði.
Undantekning frá reglunni er Þorsteinn M. Jónsson bók-
sali á Akureyri. Hann hefir á síðustu árum verið lang-stór-
virkastur allra íslenzkra bókaútgefenda. Fjöldi bóka hefir
komið frá forlagi lians, bæði skáldrit og fræðibækur ýmis
konar. Fyrir nokkrum árum hóf hann útgáfu ritsafns, er