Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1931, Page 101
IÐUNN
Bækur 1930.
95
hann nefnir L ý ð m e n t u n. Hafa í safni pessu hingað til
komið fjögur bindi — Einar Olgeirsson: R o u s s e au,
Ágúst Bjarnason: Himingeimur’inn, Gudm. Finn-
bogason: Vilhjálmur Stefánsson og Fridrik J.
Rafnar: Mahatma Gundhi — alt læsilegar bækur og
fróðlegar. Nú um tveggja ára skeið hefir orðið hlé á þess-
ari útgáfu, ef til vill af því, að ekki hefir verið nægileg
sala á bókunum, en illa væri það farið, ef þessi útgáfa
skyldi falla niður, svo myndarleg og þörf sem hún var.
En Þo'rsteinn hefir mörg járn í eldinum í senn. Hann
gefur út eins konar ársrit fyrir þjóðsagnir og önnur alþýð-
leg íslenzk fræði, er Gráskinna nefnist, en fyrir efn-
inu sjá þeir Sigurdur Nordal og Pórbergur Pórdarson. Eru
komin út tvö hefti af þessu riti. Annað þjóðsagnasafn er
borsteinn einnig eð gefa út, er Oddur Björnsson liefir safn-
að, en Jónas Rafnar býr undir prentun. Þetta safn hefir
hlotið nafnið G r í m a. Af því munu vera komin 4 eða 5
hefti, en ekki hafa þau öll verið send Iðunni. Bæði þessi
söfn eru hin álitlegustu.
Þá gaf og Þorsteinn út á síðasla ári F e rd a in i n n i n g -
a r Sveinbjarnar Egilssonar, fyrsta hefti annars bindis, en
áður var komið út eitt bindi af þeim. Hispurslaus og rösk-
leg frásögn uin það, sem bar fyrir augu og eyru höf. á
ferðum hans um fjarlæg höf og til framandi landa. Mun
margan fýsa að lesa framhald þessara ferðasagna. — Enn
kom frá sama forlagi Saga Snœbjurnar í Hergilsey, rituð
af honum sjálfum. Sú bók er frekar sundurlausar frásagnir
um menn og atburði við Breiðafjörð en samfeld æfisaga
höf., en fróðleg er hún um margt, rituð á hressilegu, nokk-
uð fornlegu máli.
Úr því að farið er að minnast á æfisögur, má geta
Æfisögupáttu Péturs Jóhannssonar bóksala ó Seyðis-
tirði. Eru þættirnir ritaðir af honum sjólfum, en ekkja
hans gaf þá út. Æfisaga þessi er mjög yfirlætislaus og
myndi kannske af sumum talin lítt merkileg, en sýnir þó
að minsta kosti, að þar var á ferð góður drengur, einn af
l>eim, sem vinna verk sitt í þjóðfélaginu án þess að um þá
standi styr eða liávaði, en vinna það ekki af minni trú-
mensku fyrir því.
Frá fyrra ári (1929) eru tvær bækur um noröurferðir.