Kirkjuritið - 01.01.1936, Síða 31
Kirkjuritið.
SÉRA PÁLL STEPHENSEN
FRÁ HOLTI í ÖNUNDARFIRÐI.
Hann var fæddur í
Holti hinn 9. maí 18(i‘2.
Faðir hans var Stefán
prófastur Stephensen i
Holti í Önundarfirði, son-
ur séra Pjeturs Steplien-
sens að Ásum í Skaptár-
tungu, sonar Stefáns amt-
manns á Hvítárvöllnm,
sonar Ólafs Stephensens
stiptamtmanns. Móðir séra
Páls var Guðrún, dóttir
Páls amtmanns Melsteðs
og koiiu hans Önnu, dótl-
ur Stefáns amtmanns
Thorarensens og konn
lians Ragnheiðar Vigfús-
dóttur Schevings, en Stefán amtmaður og Ragnheiður
v°ru systrahörn, liann sonur Sigríðar, er átti Þórarinn
Jónsson sýslumaður á Grund, og hún dóttir Önnu, er
voru systur Ólafs stiptamtmanns, börn séra Stefáns
ölafssonar á Höskuldsstöðum, en hann dóttursonur séra
Stefáns Ólafssonar skálds í Vallanesi. Séra Stefán i
Holti og Guðrún, kona lians, voru þvi fjórmenningar.
Séra Páll ólst upp hjá foreldrum sínum i Holti og
var settur í latínuskólann, er hann hafði aldnr til, og
varð stúdent 22 ára árið 1884 og kandídat frá presta-
skólannm árið 188(i. Sótli hann þá þegar um Kirkjubóls-