Kirkjuritið - 01.01.1936, Side 35
Kirkjuritið.
BÆR HINNA SJÚKU.
„Fíladelfía“ eða „bær hinna sjúku“, eins og hún er
einnig nefnd í daglegu tali, er allstórt þorp — með 11 til
12 hundruð íbúum. Það stendur við Terslöseskóg,
vestur frá Sórey ó Sjálandi. Bæjarlandið er liðugir 80
hektarar, af þeim eru 11 bjrggingarlóðir, garðar og göt-
ur, en tæpir 70 eru bújörð bælisins. Byggingar eru alls
um 50, sumar þeirra allstór sjúkrahús, t. d. er hælið
fyrir taugasjúklinga, Díönulundur, 4 stórbyggingar sam-
tastar og standa í skóginum.
Hælið er prestakall út af fyrir sig, á sína eigin kirkju
ug liefir sína eigin presta. Er sóknarpresturinn ásamt yfir-
lækni hælisins í stjórn þess. Formaður stjórnarinnar
et‘ dómprófastur C. Skovgaard-Petersen í Hróarskeldu.
Hælið er sjálfseignarstofnun og var upphaflega sett
11 stofn fyrir flogaveika, sem venjuleg sjúkrahús vildu
°kki taka.
Frumkvöðull að stofnun hælisins var dr. Adolpli
8hell, læknir í Terslöse, og var starfið hafið 7. febr.
1897. Sama liaust voru útbúin 2 sjúkraherbergi á
Hýli læknisins, en jörðina afhenti hann síðar stofnun-
mm til eignar. Næsta sumar var svo fyrsta nýbygging
hælisins fullgerð og nefndist: „Krosshúsið", ekki af því
að húsið væri byggt í kross, heldur af því að „kross
•fesú Krists“ hafði knúið fram starfið.
Það sem einkennir alla þessa starfsemi er bróður-
kærleikurinn, þráin að geta aukið gleði og gæfu ann-
ara naanna, einkum þeirra, sem bágast eiga.
Alt hælið er skoðað sem eitt heimili, þar sem ætlasl
er 111» ao allir geri all sem þeir geta öðrum til gleði og'
kjálpar.