Kirkjuritið - 01.01.1936, Side 60
54
Erlendar fréttir.
Kirkjuritið.
að ferð dr. Kagawa muni bera góðan árangur og verða kirkj-
unni til vakningar í þjóðfélagslegum efnum.
í Evrópu ætlar Kagawa að kynna sér fyrirkomulag sjúkra-
sjóða. Hefir hann mjög barist fyrir þeirri hugmynd í Japan
að koma á fót sjúkrasamlagi, þar sem hver fjölskylda, sem
Iiefir í tekjur minna en 1800 yen árlega (þ. e. um 2400 kr.), geti
Irygt sig fyrir læknishjálp gegn 5 yen árgjaldi. Sýnir þetta, að
fagnaðarerindið er þessuni merkilega manni kraftur til hjálp-
ræðis, ekki aðeins i hinum innra skilningi heldur og í mann-
félagslegum efnum. Á s.l. sumri ferðaðist hann um New Zealand,
Ástralíu og Hawaieyjar í sömu erindum og vakti ferð hans
geysilega athygli.
E. Stanley Jones,
kristniboðinn heimsfrægi, ritar í ,,The Christian Century“,
Chicago, lögeggjan til Ameríkumanna um að sameinast i eitl
voldugt kirkjufélag, er nefnist „Kirkja Krists i Ameríku":
„Vér höfum engu að tapa nema girðingunum á milli trúar-
flokkanna og nafngiftunum á hverjum flokki. En ef vér vilj-
um öll tilheyra Kristi, ættum vér að geta sameinast í kirkju,
sem ber hans nafn. Heimurinn rambar nú á barmi glötunar-
innar. Vér sjáum, að alt stefnir nú til nýrrar styrjaldar, en
megnum þó ekki að afstýra henni. Enda þótt vér vitum, að ný
styrjöld mundi eyðileggja vora menningu, sjáum vér þó ekki
úrræði til að efla nægan friðarvilja til að forða oss frá henni.
Og enda þótt vér finnum, að hin fjárhagslegu vandkvæði eru
ekki óleysanleg, þar sem hvorki skortir náttúrugæði eða þekk-
ingu til þess að hægt sé að framleiða nóg handa öllum, þá fer
þó all í handaskolum fyrir oss um þessa framleiðslu. Ástæðan
er meðal annars sú, hversu allir góðviljaðir kraftar eru dreifðir
og ósamtaka. Kristnir menn eru hið stærsta félag, sem nokkru
snni hefir verið stofnað um nokkra einstaka hugsjón. Dreifðir
og sundraðir megna þeir lítils, eins og dæmin sanna. Samein-
aðir gætu þeir komið til leiðar næstum því hverju sem er.
Kristnir menn í öllum löndum sameinist“.
Kirkjudeildir sameinast.
Hvergi er trúflokka sundrung jafn mikil og i Ameriku, enda
skifta kristnar kirkjudeildir þar hundruðum og hafa verið að
klofna af öllum mögulegum og ómögulegum ástæðum síðan
land bygðist. Nú á síðustu árum hafa komið fram sterkar radd-
ir um sameiningu og samheldni hinna kristnu kirkjudeilda
um sameiginlegar hugsjónir og berast hvaðanæfa fregnir um