Kirkjuritið - 01.12.1940, Side 4
326
Þórunn Richardsdóttir:
Nóv.—Dps.
Fæðingarkapellan i Betlehem.
heilög jól af því, að undursamlegt barn hefði fæðst
þessa nótt, langt austur í löndum. Þá vildi foringinn ekki
vera eftirbátur annara, en tók mjúkt, hvítt lanmbsskinn
upp úr tösku sinni og sveipaði um nýfædda barnið. —
Eða hver af eldra fólkinu man ekki sín eigin bless-
uðu bernskujól, í gömlu baðstofunni heima, með kerta-
ljós, laufabrauð og brydda skó? Alt var þvegið og fægt,
sópað og prýtt eftir föngum. — Pabbi situr við borðið
með tvö kertaljós, og Pjeturshugvekjur opnar fyrir fram-
an sig, hann er að finna sálmana, sem á að syngja „til
lesturs“.
Mamma situr á rúminu sínu og heldur að sér höndum
— aldrei þessu vant, — og litla systir —- fimm ára —
tvístígur fyrir framan hana, hallar undir flatt, og horfir
á liana með undrun og gletni í augunum, þangað til bún