Kirkjuritið - 01.12.1940, Page 15

Kirkjuritið - 01.12.1940, Page 15
Kirkjuritið. Frans frá Assísí. 337 um vilja þínum.“ Er hann bað svo, þótti honum sem hann gæti ekki annað en horft starandi augum til Jesú. Eitthvað undursamlegt gerðist i sál hans, og jafnframt varð alt lieilagt umhverfis liann. Hinn krossfesti var þar lifandi, og í kyrðinni heyrði hann milda rödd, sem leið inn í instu djúp hjarta lians. Hann mælti til lians á máli, sem engin tnnga fær talað. Jesús þáði fórn hans, Jesús þáði vinnn hans, líf hans, veru hans, og einstæð- ingurinn, sem áður var, laugaðist ljósi og krafti. Þessi dularreynsla veitti Frans sigur í baráttu hans. Nú gat hann sagt eins og Páll postuli: „Þó ekki framar ég, lieldur lifir Kristur í mér“. Ilann spurði þegar, hvernig hann gæti launað Kristi ást lians, og honuin þótti sem kapellan lirörlega benti sér á svarið. Þar átti hann að byrja og létta ekki fyr en hún væri orðin veglegt musteri Guðs. Nokkuru síðar gengur hann inn í hæinn og ætlar að hitta foreldra sína. Það voru þung spor fyrir inanna- sjónum. Ekkert minti framar á glæsimennið, sem áður var. Þar var kominn heiningamaður í staðinn, búinn tötrnm. Börnin flyktust að honum frá götum og torgi, æptu að honum, að hann væri vitfirringur, köstuðu grjóti og óþverra og létu öllum illum látum. Faðir Frans heyrði óhljóðih og vildi njóta þessarar nýstárlegu sjónar, en þá var alt í einu nefnt nafn lians og hann sá, hvers kyns var. Hann þaut á son sinn i ofsabræði, tók fyrir kverk- ar honum og dró hann inn í hús sitt og flevgði honum nær dauða en lífi í myrkraklefa. Þar var honnm haldið um liríð í böndum og reynt að fá hann til að hætta við áform sitt. En alt kom fyrir elcki. Og loks skar móðir hans á böndin, þegar faðir lians var elcki heima, og hann skundaði beint til kapellu sinnar. Þá krafði faðir lians liann þeirra fjármuna, er liann hafði fengið honum, og fór í mál við hann. Fyrir réttinum færði Frans honum síðustu skildinga sína og fötin sín og mælti: „Hingað til hefi ég kallað þennan mann föður minn, en nú þrái ég að þjóna Guði. Því færi ég honum þessa fjármuni og

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.