Kirkjuritið - 01.12.1940, Page 16

Kirkjuritið - 01.12.1940, Page 16
338 Ásmundur Guðmundsson: Nóv.—Des. föt og héðan í frá þrái ég ekki að segja annað en þetta: Faðir vor, þú, sem erl á himnum.“ Kapellusmíðin sóttist smámsaman, unz henni lauk að fullu. Og þá tók Frans sér fyrir hendur að gjöra við fleiri kirkjur og prýða þær. En þar kom sunnudag einn, að liann sá að sér var annað hugað. Hann hlustaði á prest lesa guðspjallið um sendingu lærisveina Jesú og komst við af öllu hjarta. Honum virðist presturinn hverfa, en Kristur sjálfur koma í staðinn. Ilann talar, hinn krossfesti, er hann fann áður i kapell- unni: „En á ferðum yðar skuluð þér prédika og segja: Himnaríki er í nánd. Læknið sjúka, hreinsið líkþráa, rekið út illa anda. Ókeypis hafið þér meðtekið, ókeypis skuluð þér af hendi láta. Fáið yður eigi gull né silfur né eirpeninga í helti yðar, og eigi mal til ferðar né tvo kyrtla né skó né staf, því að verður er verkamaðurinn fæðis síns.“ Þessi orð urðu honum opinberun. Þau voru svar af liimni við dýpstu þrá hans. „Þetta er það, sem ég þarfnast,“ hrópaði hann, „þetta er það, sem ég leita. Upp frá þessum degi skal ég af fremsta megni reyna að gjöra þetta.“ Samstundis fleygði liann frá sér staf sínum, mal, pyngju og skóm og fór svo að hoða í orði og verki, að himnaríki væri í nánd. llægt og hægt eignaðist hann samstarfsmenn. Og þegar þeir eru orðnir nokkur hópur, leita þeir á fund páfa til þess að fá sam- þykki hans til prédikunarstarfsins. En það liggur ekki laust fyrir. Þá biður Frans Krist um hjálp, og svarið og bænheyrslan þykir honum vera dæmisaga, sem hann segir svo aftur páfanum. Er hún um fátæktina og á þessa leið: „Einu sinni var uppi í óbygðum hláfátæk kona, en fögur með afbrigðum. Voldugur konungur sá liana og geklc að eiga hana. Þau áttu saman marga sonu. Þegar þeir voru orðnir frumvaxta, sagði móðir þeirra við ])á: Þið þurfið ekki að fyrirverða ykkur fyrir neinum. Þið eruð konungssynir. Farið til hirðar konungsins, og hann mun gefa ykkur alt, sem þið þarfnist. Þegar þangað

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.