Kirkjuritið - 01.12.1940, Side 17

Kirkjuritið - 01.12.1940, Side 17
KirkjuritiS. Frans frá Assísí. 339 kom, dáðist könungurinn að fegurð þeirra og sá, að þeir voru honum líkir. „Hvers synir eruð þið,“ spurði hann. Og þegar þeir svöruðu, og þeir væru synir fátækrar konu í óbygðinni, þá þrýsti konungurinn þeim fagnandi að hjarta sér og sagði: Yerið óhræddir, því að þið eruð synir mínir, og þið skuluð nærast við mitt borð.“ Frans sagði söguna með barnslegri einfeldni. Páfinn, Innocentius III., stóðst hana ekki, lét undan og lagði blessun sína yfir starf hans og bræðra hans. Þannig yfirstígur Frans liverja raun, og sigurinn á hann því að þakka, að hann lifir eftir orðum Ivrists: „Takið á yður mitt ok og lærið af mér, þvi að ég er hógvær og af hjarta litillátur.“ IV. Næstu árin sást oft á ferð um Ítalíu maður fótgaug- andi, i gráum kufli og herfættur, í hærra meðallagi á vöxt, grannur og fölleitur, fríður sýnum og svarteygur, svipurinn hýr og ástúðlegur, og tign og yndisþokki yfir persónunni allri. Engum, sem sér hann, fær dulist, að hann er með heilags manns yfirbragði, og vinarþel vakn- ar til hans ósjálfrátt. Það er „litli bróðirinn“, eins og Frans nefndi sjálfan sig. Prédikun lians liefir mikil áhrif hvar sem hann kennir. Hún er einföld og óbrotin eins og mest má verða, fáorð og gagnorð og æfinlega út frá lífinu og reynslunni. Hún vekur samvizku manna og veldur hughvörfum iðulega. „Orðin nísta helg og hrein sem heiðastormur merg og bein.“ Hann bendir á þverhrestina í skapgerð manna og vill reyna að brenna alt óhreint burt þaðan með heilögum eldi kærleikans. Hann leggur megináherzlu á iðrun, fallvelti lífsins, laun komandi aldar og fullkomn- un samkvæmt kenningu guðspjallanna. Enginn kann að lýsa dularþrá mannanna eftir æðra lifi. Stundum mæna þeir um Ijósaskiftin á fölvann bjarta yfir sjóndeildar- hringnum, og með kvöldsvalanum leikur um þá nýr andi

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.