Kirkjuritið - 01.12.1940, Side 28

Kirkjuritið - 01.12.1940, Side 28
350 Hannes J. Magnússon: Nóv.—Des. virðulegu sunnudagshelgi með húslestrum og guðsþjónust- um á víxl. Það var að vísu lítill og þröngur heimur, en hann var fullur af friði og öryggi, hann var ekki plægður þar upp akurinn í dag, sem sáð var í í gær. Allur gróður náði til að vaxa. Sunnudagar hins nýja tíma eru að verða mestu annadag- arnir, minstu livíldardagarnir, og í öllum þeim ys langar mig stundum til að vera horfinn í litlu, gömlu kirkjuna mína vestur í Skagafirði; hlusta þar á gömlu uppáhalds- sálmalögin, sem ég lærði þar sem barn, sjá þar blessaðan gamla prestinn minn, háan og virðulegan, og öll gömlu, kæru andlitin, sem nú eru mörg horfin burt af leiksviði lífsins. Ég sé þau ennþá fyrir mér með rúnum ótal erfið- leika, en með alvöru og staðfestu í svipnum, og falslausa trygð við allar sínar hugsjónir. Þetta voru alt lietjur, hetjur liins fábreytta daglega lífs, hetjur, sem þóttust þó livorki svo vitrar eða sterkar, að þær væru upp úr því vaxnar að leita skjóls iijá Guði í „vetrarhríðum vaxinnar æfi“, eða biðja sinna hljóðu bæna í litlu kirkjunni sinni. Fyrir tæpum þremur árum var ég við guðsþjónustur í nokkurum kirkjum úti i Danmörku. Það var einkum þrent, sem vakti athygli mína þar. Hið fyrsta var það, að flestir prestarnir prédikuðu hlaðalaust, það gerði ræður þeirra persónulegri og hlýrri. Hið annað var hin almenna þátttaka í kirkjusöngnúm, og það þriðja, sem mér kom einkennileg- asl fyrir sjónir, var hin mikla þátttaka kirkjugesta í altaris- sakramentinu, og það við venjulegar guðsþjónustur. Við eina slika guðsþjónustu, sem stóð í samhandi við mót Ung- mennafélaga vestur á Jótlandi, hygg ég, að kvöldmáltíðar- gestir hafi skift hundruðum, flest ungt fólk. Þessi virðing og trúmenska við gamlar, kirkjulegar athafnir, mintu mig á gömlu guðsþjónusturnar vestur í Skagafirði fyrir 30 ár- um. Altarisgöngur voru þar að vísu ekki nenia í sambandi við fermingu, en þær voru í augum manna þá helgasta og hátíðlegasta athöfn hinnar kristnu kirkju, og hvaða dóm, sem við, hinir kaldrifjuðu menn 20. aldarinnar, leggjum

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.