Kirkjuritið - 01.12.1940, Síða 38

Kirkjuritið - 01.12.1940, Síða 38
360 Kristléifur Þorsteinsson: Nóv.—Des. bera, sem einn prest mátti prýða. Einkum voru það radd- fegurð og glæsimenska, sem gerði hann svo minnilegan. Þá voru nokkurir bændur í Reykholtssókn orðlagðir söngmenn og kunnu öll Grallaralögin reiprennandi. Hófst þá oft messa á sálminum „Um Guð ég syng, því syng ég frár. Sá er vor mikli Guð.“ Lag við þennan sálm þótti bæði fagurt og bátíðlegt, en afar vandsungið og þótti ekki meðfæri annara en beztu söngmanna. f mínu ungdæmi lieyrði ég aðeins einn mann synga þetta lag, var það Sigurður ljóndi í Karlsbrekku, orðlagður söng- maður. Ýmsra fleiri sálma mintist móðir mín, sem henni urðu kærir alla tíð frá því, að þessi Reykholtssöfnuður söng þá inn í hjarta liennar, þegar hún var á æskuskeiði. „Guð miskunni nú öllum oss“, „Heiður sé Guði liimnum á“ og „Til þín heilagi herra Guð“ og auðvitað marga fleiri. Hin svokallaða Aldamótabók náði aldrei slíkri hylli sem Grallarinn, í lijörtum alþýðumanna, víst meðfram fyrir þá hörðu deilu, sem út af henni reis milli tveggja þjóðkunnra manna, sem áttu þar sálma. Var hún af sumum nefnd Skynsemistrúarbóldn. Samt héldu eldri sálmar þar vinsældum og líka nokkurir eftir presta, sem voru á lífi þegar bókin var gefin út. Meðal þeirra má nefna jólasálm séra Þorvalds Röðvarssonar: „Dýrð sé Guði í liæstum liæðum“, og vorsálm séra Kristjáns Jóhannssonar: „Guðs gæzku prísa“. Um þessar tvær sálmabækur, Grallarann og Aldamótabókina, var nokk- ur togstreita, svo að hvorug var látin víkja, en l)áðar notaðar jöfnum höndum, og valt á ýmsu um notkun þeirra. En 1871 kom út sálmabók með úrvali hinna gömlu sálma færðum í betra rím og mörgum frumsömd- um, áður óþektum, ortum af prestum, sem þá voru á lífi er bókin kom út. Eftir það mátti heita svo, að Grall- aranum og Aldamótabókinni væri stungið undir stól bæði í kirkju og heimahúsum. Fimtán árum síðar varð þó þessi bók að i-ýrna fyrir þeirri sálmabók, seni ennþá

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.