Kirkjuritið - 01.12.1940, Síða 47

Kirkjuritið - 01.12.1940, Síða 47
KirkjuritiS. Sambúð prests og safnaðar. 369 En það er ýmíslegt það að gerast í heiminum nú, sem bendir til þess, að jafnvel innan ekki órafjarrar fram- tíðar geti það skift sköpum fyrir þessa þjóð, bvernig okkur befir tekist í söfnuðunum að vinna fyrir Krist, kon- ung sannleika og réttlætis. Á hvern liátt verða þau bezt tengd, tengslin við söfn- uðina ? Við höfum prédikunarstólinn. Þaðan getum við látið raust okkar g'jalla. Páli var stundum þrýst út úr sam- kunduhúsunum með barsmíð og grjótkasti. Slíkt hendir varla okkur, það hefir ekki gerst til þessa. Það er ákaflega mikill aðstöðumunur. En höfum vér gætt eins, eða réttara, böfum vér liaft það nógu lifandi fyrir hugskoti voru, að þessi prédikunarstóll, sem stendur hátt í hverri kirkju, og sem okkur öllum mun þykja vænt um, honum var lyft þangað upp af sárum bökum þeirra, sem fórnuðu öllu, breint öllu, heimili, áliti, virðingu, vináttu, öllu — Páli og lians líkum, sem og sögðu: „Kristi alt“. Við göngum inn í þennan lielgidóm, sléttir og fágaðir, frá grænu prófborði, sem við höfum setið við i kjóli og hvítu. Óskapar munur. — Óskapar munur á undirstöðu. Það er vandi undir slíkum kringumstæðum að láta eldinn ekki kólna. — Það er vandi undir slíkum kringumstæðum að tengja liin sömu brennandi tengsl ábuga og orku við söfn- uðina eins og prédikurum frumkristninnar tókst, þegar ekkert var vani, en alt var líf. Nú stöndum við í þessum stólum — Guð veri okkur syndugum náðugur — og eigum að veiða menn. Þarna situr söfnuðurinn fyrir framan okkur, andlit við andlit og við eigum að ávinna hann allan fyrir Krist, en þráfaldlega, þegar við komum út, er talað við okkur um veður og pólitík, eins og við hefðum aldrei í stólinn farið. En þetta er alt skóli, góður skóli — og einhversstaðar frá hljómar rödd í eyrum okkar, rödd, sem einnig hljóm- aði í eyrum Páls, og segir:

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.