Kirkjuritið - 01.12.1942, Qupperneq 52
354
Árni Árnason:
Nóv.-Des.
Ég geí búist við því, að ýmsir þeir séu til, meðal krist-
inna manna, sem virðist þetta, fljótt á litið, sennilegt,
og telji það all-veigamikla röksemd, að lítt hugsuðu
máli. Vér skulum því líta nánar á þessa fullyrðingu. Við
hana er nú það fyrst og fremst að athuga, sem líka er aðal-
atriðið, að hreytingar, og enda byltingar í lífi þjóðanna
geta orðið á ýmsan hátt, og þeir, sem mætti nefna bylt-
ingamenn, eru því svo mismunandi, að þeir eiga elcki
saman nema nafnið. Þeir, sem alment eru nefndir bylt-
ingamenn á vorum tímum, eru yfirleitt menn, sem, ef
þeim er alvara, ætla sér að skapa þjóðarheill með gagn-
gerðum breytingum á stjórnarfyrirkomulagi þjóðanna
og á framkvæmd þjóðmálanna í heild sinni. Þessum
breytingum vilja þeir fá framgengt með byltingu, ef þess
er ekki fljótlega kostur á annan hátt. Þeir vilja ekki
una því og bíða þess, að breytingarnar verði eftir venju-
legum og' gildandi lögum og' reglum, sem þeir ekki við-
urkenna rétlmæt og bindandi, lieldur vilja þeir neyta
aflsmunar og beita ofbeldi, með þeim afleiðingum, sem
því eru samfara.
En það eru til miklu fleiri, sem mætti nefna byltinga-
menn, heldur en þessir, og það eru til byltingar og þjóð-
lífsbreytingar í alt annari merkingu. Það eru til andleg-
ir byltingamenn, sem hafa valdið straumhvörfum í and-
legu lífi, bæði sinnar eigin þjóðar og annara.
Trúarbragðahöfundar allra alda liafa verið slíkir bylt-
ingamenn, og innan kristninnar er Liiter, til dæmis,
slíkur byltingamaður. Aðrir hafa aftur valdið gjörbreyt-
ingum í verklegum efnum og vélanotkun, en þær breyt-
ingar hafa aftur gjörbreytt lífi þjóða og einstaklinga að
ýmsu leyti. Edison og' Marconi voru, til dæmis, slíkir
byltingarfrömuðir. Enn aðrir hafa valdið algjörum
breytingum á öllum aðferðum til þess að forðast sjúk-
dóma, lækna og lina þrautir, og þannig valdið gjör-
breytingu á háttum og liögum þjóðanna og öllum fram-
kvæmdum í lieilsuvernd og aðbúð við liina sjúku. Slíkir