Kirkjuritið - 01.12.1950, Blaðsíða 20

Kirkjuritið - 01.12.1950, Blaðsíða 20
270 KIRKJURITIÐ Kenning Jesú, fullþroska og fullmótuð eftir skírn hans og freistingu, er fagnaðarerindið um komu Guðs ríkis. Hún lýtur ekki aðeins að því, að ríkið sé nálægt. Það kemur. Já, er þegar komið. Það er komið alls staðar þar, sem vilji Guðs ræður. „Komi ríki þitt“ og „verði vilji þinn svo á jörðu sem á himni“ er í raun og veru sama bænin. Þess vegna er stefið í sæluboðum Fjallræðunnar: „Þeirra er himnaríki." Mönnunum er ekki fyrst ætlað að verða sælum og erfa ríki Guðs handan við gröf og dauða, heldur þegar í þessu lífi. Þessi syndum flekkaða jörð á í raun og sannleika að ummyndast öll í Guðs ríki. Breytingin verður að gerast að innan með þeim hætti, að mennirnir taki sinnaskiptum og trúi fagnaðarboðskapn- um um Guð, veiti anda Guðs viðtöku, anda kærleika, rétt- lætis og sannleika, endurfæðist til eilífs lífs. Þá er sum- arið í nánd, fjötrar vetrarins hrökkva fyrir skini sólar- innar og jörðin býst nýjum gróðri — verður ný jörð, þar sem góðir menn byggja í samhljóðan við vilja Guðs og lög, í djúpu samfélagi við hann sjálfan. Voldugt undur verður. Ríkið mun breiðast út hið innra í mannssálunum líkt og súrdeigið, sem kona tók og faldi í þrem mælum mjöls, unz það sýrðist allt saman (Lúk. 13, 21; Matt. 13, 33). Það mun vaxa eins og mustarðskornið, sem verður öllum jurtum stærra og fær stórar greinar, svo að fuglar him- ins geta hreiðrað sig í forsælunni af því (Mark. 4, 32 og hliðst.). Það er eilíft líf mitt í tímanum, líf í trú og sið- gæði, líf í návist Guðs, sem brýzt fram frjálst og óháð öllu öðm. Að vísu boðar Jesús einnig ríkið í sambandi við dóm og heimsslit í ægiljóma, en fyrst og fremst er það hljóður kraftur Guðs í mannshjörtunum, sem birtist með fyrirgefningu og friði, innra líf og gróandi, sem heyrir börnunum til og þeim, er líkjast þeim í anda. Jesús kemur sjálfur með þetta ríki til mannanna. Hann sér fyrirheitin um það rætast í þeim náðargjöfum og í þeim krafti, sem hann veitir mönnunum frá föðurnum á himnum, í máttarverkunum, sem hann vinnur, og eink-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.