Kirkjuritið - 01.12.1950, Blaðsíða 87
Skírnir í kirkju,
Skírn ungbarna er ein af fegurstu helgiathöfnum kirkjunnar.
Foreldrar ættu yfirleitt ekki að draga það um of að skíra
börn sín, bau ættu helzt ekki að vera eldri en hálfs árs, þegar
þau eru borin til skírnar.
Frá sjónarmiði trúarinnar er skírnin heilög athöfn, sakra-
menti. Barnið er helgað Guði, leitt að föðurhjarta hans, til
þess að það verði í sérstökum skilningi náðar hans og kær-
leika aðnjótandi fyrir samfélagið við Jesúm Krist.
En sjálf skírnarathöfnin á að fara fram í kirkju, þegar
því verður við komið, það eykur mjög helgi athafnarinnar,
og bæjum og kauptúnum er auðvelt að koma þessu svo fyrir.
Víða tíðkast einnig mjög, að börn séu skírð í kirkju um
jólin. Hér að framan birtist mynd af skírnarathöfn í kirkj-
unni á Siglufirði á 2. jóladag 1949, en þá var 21 barn skírt
í barnaguðsþjónustu.
Ó. J. Þ.
Nýjung í íslenzkri bókagerð.
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar
með orðalykli eftir Björn Magnússon
prófessor. Snæbjöm Jónsson 1950.
Þessi útgáfa Passíusálmanna er gerð eftir orðréttri útgáfu
Finns Jónssonar á eiginhandarriti Hallgríms Péturssonar sjálfs
og mjög vönduð. Eru sálmamir prentaðir í ljóðlínum á góðan
pappír, og bandið sterkt og smekklegt.
Útgáfan er sérstæð að því leyti, að henni fylgir orðalykill,
þannig að finna má umsvifalaust hvaða vers eða ljóðlínu í
Passíusálmunum sem vera skal, ef menn muna aðeins úr eitt
orð. Er þetta góð nýjung í íslenzkri bókagerð. Má telja
það einkar vel fallið, að lesendum sé þannig greiddur vegur
að lífsspeki og trúarsannindum Passíusálmanna, því að gull
þeirrar námu þrýtur aldrei. Sú var tíð á íslandi, að mörgum