Kirkjuritið - 01.01.1951, Side 6

Kirkjuritið - 01.01.1951, Side 6
Hvert skal halda? I. öldin er hálfnuð. öld tveggja heimsstyrjalda það sem af er. öld, er skelfur af ótta við hina þriðju, sem kunni að renna upp á þessu ári. Og þó hafa ástgjafir Guðs við mannkynið verið hinar sömu og áður, eilíft þakkarefni eins og fyrr. Það erum við mennirnir, sem höfum brugðizt honum. Verður þá engu um þokað? Hlýtur allt, sem liðið er, að haldast hið sama um aldur? Verður aidrei breytt neinu, er að baki liggur? Ýmsir eru þeirrar skoðunar. Þeir ætla, að liðni tíminn verði nákvæmlega hinn sami og öll útsýn yfir hann, hvernig sem framtíðin verður. Eitt sé óumbreytanlegt með öllu, endurminning þess, er var. Ef þetta er rétt, ef ekkert er unnt að gjöra til að bæta fyrir glæpi og bróðurmorð, þá hlýtur okkur að skorta dug og djörfung til að leggja á nýja áfangann — síðara helming aldarinnar, þar sem dauðinn bíður okkar flestra, sem nú erum komnir til vits og ára. Þá hlýtur Kain að verða niðurlútur til eilífðar. Þá er okkur þegar búinn ósigur. En fyrir Guðs náð getum við breytt því, sem liðið er, þannig, að það horfi við mjög á annan veg en áður var. Sá, sem klifrar upp fjallshlíð, sér, að slakkamir hið neðra eru alltaf að breytast fyrir augum hans eftir því sem hann kemst ofar, og jafnvel á blakkar aurskriður getur brugðið perluljóma. Sá, sem sættist við óvin sinn, sér minning- amar um hatrið í milli í öðm Ijósi en áður og mildara,

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.