Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1951, Qupperneq 24

Kirkjuritið - 01.01.1951, Qupperneq 24
22 KIRKJURITIÐ sínum, hina sömu sem áður að sjúkrabeði dóttur Jaírusar, þá Pétur, Jakob og Jóhannes. Hann heldur með þá upp suðurhlíðar Hermonfjalls, sem ber við himin með tignar- legum og glæstum stöllum og bungum, hyrnum og skorn- ingum. Er kambur þess á fjórðu mílu á lengd suður af Antí-Líbanon. Það er hæst um miðjuna, miklu hærra en Öræfajökull, og rísa þar tindar upp af breiðum fanna- skildi, um 2760 metra háir. Þetta er í augum Gyðinga konungur fjallanna, fjallið heilaga, fjallið eina. Efst undir jökulkrúnunni eru kalkhamrar og berar blágrýtisklappir, þar sem refar eiga greni, úlfar bæli, birnir híði og ernir hreiður. En mannsfóturinn stígur sjaldan upp í þessa háu klettasali. Þangað er ekki heldur ferðinni heitið að þessu sinni. Hægt og hægt þokast hópurinn litli upp hlíðarslakk- ana, um hæðadrög og hóla, hvamma og brekkur, þar sem birkiskógur vex af blágrýti, en innan um á stangli olíu- viður og fíkjutré og vínviður. Hér og þar má einnig líta önnur aldintré, eikur og kýprus. Þegar þeir koma upp úr skógunum, tekur við austurlenzkur heiðagróður. Einhvers staðar hátt í hlíðinni nema þeir staðar. Þar vill Jesús biðjast fyrir í kyrrð og einveru fjallanna. Liðið er á daginn, og þeir litast um í kvöldskininu. Dýrlegust útsýn er þaðan yfir Gyðingaland, í björtu veðri allt suður að Dauðahafi. Hreinn fjallablærinn leikur um þá. Þeir eru móðir og þreyttir eftir að hafa klifið bratt- ann og verða hvíldinni fegnir. Sólskinið slokknar á tind- unum, rökkur færist yfir og svo stjörnubjört nótt. Þeir ræða saman um stund. Staðurinn er heilagur. Svo verður þögn. Postularnir þrír sveipa fast um sig yfirhöfnum sín- um og gefast svefninum á vald. Jesús vakir einn á bæn. Svo vill hann, að nóttin líði, í djúpu samfélagi við föður hans á himnum. Þannig hafa liðið margar nætur í lífi hans. Bænin er hjálp hans og styrkur, svölun og endumæring. Við hjarta Guðs öðlast hann frið og kraft. Eflaust er bænarefni hans nátengt því, sem hann hefir boðað lærisveinum sínum þessa daga.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.