Kirkjuritið - 01.04.1951, Blaðsíða 7
SUMRI FAGNAÐ • BÆN
97
Komi, — komi fylking fríð,
voldugir og valdasmáir,
veikir, snauðir, ríkir, háir!
Drottin sérhver tigni tíð.
Allir heimsins helgidómar
hljómi, Guð, til dýrðar þér.
Þökk og játning eilíf ómar:
Öruggt hæli Drottinn er!
(Að nokkru eftir erl. fyrirmynd).
VALD. V. SNÆVARR.
Bœn.
Þú, Ijóssins Guð, sem lýsir myrka geima
og Ijós þitt sendir út um víða heima;
svalaðu mér á Ijóssins helgu lindum
og lækna mig af öllum mínum syndum.
Þú, lífsins Guð, sem lífið öllu gefur
og líknarörmum minnsta frækorn vefur.
Lífgaðu andans eld í huga mínum,
er upp sér lyfti' að dýrðarhástól þínum.
Þú, kærleiks Guð, sem elskar allt hið góða
og athvarf veitir börnum landa' og þjóða.
Ó, lát þinn kærleikskraft í hug mér búa
og kenndu mér að öllu góðu að hlúa.
Svo þegar jarðar-lífi lýkur mínu,
mér leið þú opna’ að sæluríki þínu,
þar sem að Ijóss og lífs og kærleiks-kraftur
kröftugri rís í sálu minni aftur.
Jón G. Sigurösson.