Kirkjuritið - 01.04.1951, Side 10

Kirkjuritið - 01.04.1951, Side 10
100 KIRKJURITIÐ þeim af stað út í hið erfiða og áhættusama trúboðsstarf. Efasemdirnar eru oft áleitnar gagnvart orðunum einum saman, ef ekkert annað er til að styðjast við. Það er svo auðvelt að segja eitt og annað, ef ekki þarf að færa að því rök eða sannanir. Og þó að tímarnir á dögum Jesú væru ólíkir nútímanum að mörgu leyti og meðal annars í því, að vera lausari við alla heilbrigða og óheilbrigða gagnrýni, þá er þó víst, að einnig þá voru staðreyndimar öruggasta undirstaðan. Jesús skildi öllum betur mannlegt eðli, líka Tómasar- eðlið, efasemdirnar, sem oft eru áleitnastar í því, sem okkur finnst mestu máli skipta. Hann lét þess vegna læri- sveina sína ekki þurfa að styðjast við orðin ein í þessu mikilvæga máli, heldur einnig þær staðreyndir, sem ekki var unnt að mæla móti eða hrekja. Hann birtist þeim sjálfur eftir dauðann mörgum og margsinnis, til þess að sýna þeim og sanna, að orð hans voru rétt og sönn, er hann sagði þeim, að hann mundi lifa áfram og einnig þeir mundu lifa, þótt þeir dæju. Við höldum heilaga páskahátíð til minningar um þessa staðreynd. Og við getum alls ekki gert okkur neina full- komna hugmynd um, hversu mikilvægt þetta var. Við sjá- um, hversu geysileg breyting varð á lærisveinunum við það að endurheimta hann frá gröfinni. Hnípnir, hugdeigir og vonsviknir höfðu þeir verið, eftir að hann var frá þeim tekinn og krossfestur. En við að sjá hann aftur upprisinn, er sem óbuganlegur karlmennskuþróttur, gleði og djörf- ung gagntaki sálir þeirra, svo að ekkert óx þeim í augum, hvorki ofsóknir né dauði, aðeins ef þeir gátu prédikað hann og útbreitt trúna á hann krossfestan og upprisinn. Það er þess vegna líklega mjög nærri sanni, að einmitt páskaviðburðinum eigum við það mest af öllu að þakka, að hinar kristnu lífshugsjónir bárust á sínum tíma út um heiminn. Fyrir síðari tíma hefir upprisa drottins Jesú haft líka ómetanlegt gildi, ekki sízt eftir að efasemdatilhneig- ingar mannanna og gagnrýni þeirra tóku að færast í vöxt.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.