Kirkjuritið - 01.04.1951, Síða 24
114
KIRKJURITIÐ
1907, um skipun prestakalla, þar eð þau eðlilega eru orðin
nokkuð úrelt.
Þessa endurskoðun virðist nefndin hafa framkvæmt —
.en því miður af svo miklu flaustri og handahófi, að ekki
verður við unað.
1 þessu bréfi kirkjuráðs til háttvirtrar menntamála-
nefndar, er ekki rúm til að benda nema á lítinn hluta þess,
er kirkjuráð telur athugavert. En nokkur atriði skal þó
drepa á, hér og þar, til að sýna, að ekki er um órökstuddan
sleggjudóm að ræða.
1. Nefndin virðist ekki hafa tekið neitt tillit til hinnar
afarmiklu fólksfjölgunar í Reykjavík, síðan sett voru lög
nr. 76 7. maí 1940, um skipting Reykjavíkur í prestaköll.
T. d. er nú hin brýnasta nauðsyn þess, að skipta Laugarnes-
prestakalli í 2 eða 3 prestaköll, þar sem í því er milli 10 000
og 15 000 manns. Einsætt hefði að minnsta kosti verið að
taka upp ákvæði 4. greinar nefndra laga um skipting
Reykjavíkur í prestaköll.
2. Lundarbrekkusókn er ófyrirsynju tekin undan Þór-
oddsstaðarprestakalli, en hún hefir fylgt því meira en 30
síðustu árin, og auðveldast að þjóna henni frá prestssetr-
inu Vatnsenda. Frá Skútustöðum væri aftur á móti yfir
fjallveg að fara, og auk þess yrði um sinn að greiða
sérstaklega fyrir prestsþjónustu þaðan.
3. Óviðfeldið er að bera fram breytingartill. við laga-
grein, sem þegar er úr gildi numin með öðrum lögum (2-
grein laga 1907, um skipun prestakalla, er felld úr gildi
með lögum nr. 76 7. maí 1940).
4. Nöfn prestakalla og sókna eru sett mjög af handa-
hófi og víða öll önnur en í lögunum um skipun prestakalla
frá 1907. Sum nafnanna eru miklu lakari en hin eldri.
Kirkjuráð lítur svo á, að á frumvarpinu séu svo margii’
gallar, að ekki komi til mála að samþykkja það á þessu
þingi, en leggur til, að látin verði fara fram ýtarleg at-
hugun á prestakallaskipun landsins í heild. Verði biskupi
falið að láta framkvæma hana og leggja síðar frumvarp