Kirkjuritið - 01.04.1951, Page 32

Kirkjuritið - 01.04.1951, Page 32
Koma biskupshjónanna til Winnipeg. Herra Sigurgeir Sigurðsson, dr. theol. biskup yfir Is* landi, og Guðrún Pétursdóttir, frú hans, heimsóttu Win- nipeg-lslendinga um jólin, og dvöldu hér í vikutíma. Enda þótt hér væri aðeins um skyndiheimsókn að ræða, verður koma þeirra hjóna vafalaust talin með helztu viðburðum hins nýliðna árs, í meðvitund Islendinga hér í borginm- Biskupinn hafði komið hingað áður, er hann fyrir nokkrum árum sat tuttugu og fimm ára afmælisþing Þjóðræknis* félags Islendinga í Vesturheimi, sem fulltrúi ríkisstjórnar Islands. Ávann hann sér þá strax almenna hylli fólks, sakir glæsimennsku sinnar, glaðværðar og prúðrar framkornu- Var mönnum yfirleitt því hið mesta gleðiefni að sjá hann aftur og rifja upp gömul kynni. Jók það ei lítið á gle^J manna í þetta sinn, að hin glæsilega kona hans var með j förinni. En hún er manni sínum engu síðri um mannkosti og hæfileika til að vinna og halda vináttu manna. Alls staðar koma þau hjón fram til góðs, og flytja með ser birtu og yl, hvar sem þau ber að dyrum. Það var því síz* að undra að margir vildu njóta heimsókna þeirra, en tím' ans vegna fengu það miklu færri en vildu. Úr þessu varð þó nokkuð bætt með því að biskupinn kom fram opinber- lega, — prédikaði í báðum islenzku kirkjunum hér, í Saih' bandskirkjunni á aðfangadagskvöld, og í Fyrstu lútersk11 kirkju á jóladaginn. Mikill fjöldi fólks notaði tækifaerið til að hlusta á hinn þróttmikla boðskap hans, og taka 1 hönd þeirra hjóna að afstaðinni messugjörð. Einnig béH stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins þeim samsæti. Það er sérstök ástæða til þess að Vestur-íslendingar fagni þessum yfirhirði íslenzku þjóðkirkjunnar. Hann er fyrsti og eini biskup Islands, sem á embættistíð sinni heftr

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.