Kirkjuritið - 01.04.1951, Side 37

Kirkjuritið - 01.04.1951, Side 37
SÉRA EINAR PÁLSSON 127 Gunnlaugs sonar þeirra, er lézt á bezta aldri, þá nýorðinn Suðfræðingur. Og nú nýlega hafa þau hjón og böm þeirra reit í hlíðinni fyrir ofan Reykholt. Þar skal vaxa *kógur, er prýði stað og byggð í framtíðinni. Ég vil geta ness hér, að annan slíkan reit hafa böm séra Guðmundar elgasonar helgað sama tilgangi. Þannig reisa góðir menn sér og hugðarefnum sínum agran minnisvarða. Og vel mætti þetta verða öðrum til fyrirmyndar. Séra Einar var orðinn háaldraður maður, er hann lézt. ann var vel af guði gerður. Gáfumar vom góðar og 1 amsþrekið mikið. Hann var líka sannur gæfumaður. ann eignaðist ágæta konu, sem var honum hinn trygg- asti fífsförunautur, þar til yfir lauk. Bamalán átti hann °venju mikið. Dimman skugga bar að vísu yfir, er hann missti Gunnlaug son sinn. ^egar leið á ævikvöldið, mun sú byrðin hafa orðið Pyngst, að hann varð alblindur. En séra Einar var trú- maður og Guðsbam. Því varð sú byrði einnig létt, er frá teið. f^egar ljós dagsins var slokknað, blasti þeim mun skýrar Vl® sálarsjónum hið æðra ljós — Slokknað var augaö ytra, innra skein Ijósið bjart, sjónum réð sdlar vitra sannleikans herra margt; er heims var horfinn Ijómi, huggarinn betra gaf: við Guð að tala í tómi og truflast ei veröld af. ^vo segir Grímur Thomsen um þann góða Guðsmann, Sig- r lektor Melsteð látinn. Ég finn ekkert sannara að segja síðustu lífsstundir séra Einars Pálssonar en þessi ljóð- 0rð skáldsins.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.