Kirkjuritið - 01.04.1951, Side 41

Kirkjuritið - 01.04.1951, Side 41
ÖLL JÖRÐIN ER MÍN 131 Frá þessari óumræðilegu elsku Guðs og umhyggju fyrir velferð mannanna er öll Biblían uppljómuð, og því rétti- lega kölluð Heilög Ritning. Það hefði mátt vænta þess, að þegar Jesús Kristur hafði staðfest fagnaðarboðskap kristindómsins með lífi sínu og fórnardauða, væri greiddur vegur til varanlegs friðar hér á jörð. En svo er ekki. Heimurinn hefir ekki enn getað vermzt svo af hinni óumræðilegu elsku, að hann geti kastað drápsvopnunum — og látið sættast við Guð. Líklega er ekkert viðfangsefni hér í heimi eins erfitt °g að skilja samtíðina, og þekkja hinn hraðfleyga vitj- unartíma, er getur liðið hjá fyrr en varir. Svo var það um vini og samverkamenn Jesú, sem lifðu með honum í heilögu andrúmslofti, umkringdir af lífsspeki hans og ki'aftaverkum. Oft hafði hann sagt þeim, að hann væri sendur frá Guði og til hvers og hvað fyrir sér lægi. En Þeir skildu hann ekki fyrr en síðar. Þeir voru meira að Segja farnir að ympra á því, að komast í ráðuneytið, þegar hann væri seztur á veldisstól Davíðs konungs. Og hafði hann þó sagt þeim, að sitt ríki væri ekki af þessum heimi. Það er fyrst þegar Drottinn hafði íklætt þá krafti frá hæðum, blessað þá og afhent þeim kirkjuna, á skilnaðar- stundinni á Olíufjallinu, að hulan hverfur frá augum ^eirra. „Og þeir tilbáðu hann og sneru aftur til Jerúsalem, ^eð miklum fögnuði.“ (Lúk. 24, 52). Lað er því mjög skiljanlegt, að bjart hafi verið yfir hinum fyrsta söfnuði, þegar hinir fyrstu safnaðarfulltrúar hrupu í einhug við vöggu kristninnar. Og heilagur andi ^ómaði yfir þeim og fyllti hugina tilbeiðslu, starfsþrótti °g friði, og helgaði þá með sannleika fagnaðarboðskapar- ins. m. En brátt fóru menn að skipta sér í flokka, og kenna sig við leiðtoga og forystumenn safnaðanna. 1 stað þess að kenna sig og söfnuðinn einungis og algjörlega við stofnanda kirkjunnar.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.