Kirkjuritið - 01.04.1951, Síða 50
140
KIRKJURITIÐ
en við dirfumst engu að síður að treysta því örugglega>
að gæzka Guðs streymi á móti okkur í allri tilverunni.
eins og Jesús kenndi, og að við sjáum alls staðar vitnis-
burð um vizku skaparans, mátt og kærleika, í ljósi sólar-
innar, sem vísar okkur veg við annir dagsins og vekur
jurtimar til lífs og gróandi, í dýrðarlitum náttúrunnar allt
frá purpurabjarma morgunroðans til fíngjörðrar fegurðar
blómanna, í tónum sönglistarinnar, í söng fuglanna, í fögn-
uði barnsins, í fórnfýsi móðurástarinnar og dásamlegum
hæfileikum mannsandans til að leysa gátur alheimsins og
kanna lög náttúrunnar. Alls staðar í veröldinni og á hverju
andartaki í lífi okkar eignumst við vitnisburð um undur-
samlega tign Guðs, vizku og kærleika. Og Jesús frá Naz-
aret er dýrlegastur allra votta um gæzku Guðs og föður-
þel til okkar allra.
Séra ThorvcHd KierTcegaard
(prestur í Kaupmannahöfn) •
★
Séra Kristinn Daníelsson prófastur,
fyrrum prestur að Söndum í Dýrafirði og að Útskálum, átti
níræðisafmæli 18. febr. Hann hefir jafnan verið einn af ágffitis-
mönnum íslenzkrar prestastéttar og henni til mikils sóma. Auk
prestsstarfanna hefir hann látið mörg störf önnur til sín taka>
meðal annars stjómmál. Var hann alþingismaður 1909—U
1913—19, forseti sameinaðs þings 1914—17. Fjöldi fólks sótti
hann heim á afmælinu, enda er hann hinn vinsælasti maðut
sökum mannkosta sinna og prúðmennsku. Kirkjuritið ámar
honum blessunar Guðs.