Kirkjuritið - 01.04.1951, Síða 55
„Ferð um Norðurmúlaprófctstsdœmi".
Athugasemdir.
Við grein Dr. Áma Árnasonar: „Ferð um Norðurmúlapró-
fastsdæmi“, er birtist í 3. hefti Kirkjuritsins, 15. árgangi, vil
leyfa mér að gjöra eftirfarandi athugasemdir:
1- Hofteigsprestakall: „Kirkjur eru þar tvær, í Hofteigi og
Eiríksstöðum.“ Svo segir í grein læknisins. Þetta er ekki rétt.
Þ*r eru þrjár. Er ein þeirra í Möðrudal.
2. Sleðbrjótssókn: Um Sleðbrjótskirkju fer læknirinn svo-
íelldum orðum: „Kirkjan er nýleg og einhver sú fegursta, sem
yið sáum á ferð okkar. Var hún áberandi andstæða við þann
éhuga á andlegum málum, sem lýsti sér í kirkjusókninm.“ Því
að þar mætti enginn. En rétt áður í greininni er læknirinn
búinn að geta þess, að fermingarguðþjónusta hafi farið fram
í kirkjunni daginn áður, en daginn eftir var „lögboðin smala-
mennska“. En það er þann dag, sem presturinn og læknirinn
®tluðu að flytja erindi sín. Er því furðulegt, að læknirinn skuli
treysta sér til að dæma um áhuga safnaðarins í andlegum mál-
Ure eins og sakir stóðu. Eða getur læknirinn búizt við, að fólk
iil sveita geti sótt kirkju dag eftir dag, og það því fremur
sem undanfarið vor hafði verið eitt hið versta, sem sögur fara
at um þessar slóðir.
3- Hjaltastaðasókn: Um fylgd þá, sem læknirinn og fylgihð
hens fékk frá þeirri sókn til þeirrar næstu, er farið mjög óvin-
samlegum orðum. Er þar farið með dylgjur um okursölu á
fylgd og hestlánum. Telur læknirinn, að vegalengd sú, er hon-
um 0g liði hans var fylgt yfir, en það er leiðin frá ytri brú á
Selfljóti undan Heyskálum til Njarðvíkur, en ekki frá Unaósi
fil Njarðvíkur eins og læknirinn telur, taki aðeins tvo tíma.
hann gefur jafnframt í skyn, að hestamir hafi verið svo
lufir, að við það hafi tíminn lengst nokkuð. Fylgd þessi og hest-
lun hafi kostað 255 krónur. En læknirinn athugar það ekkert,