Kirkjuritið - 01.04.1951, Page 57

Kirkjuritið - 01.04.1951, Page 57
ATHU G ASEMDIR 147 irinn ekki hreint út, að hér eigi hann við Hofteigsprestakall alveg sérstaklega. Því að það er það, sem hann á við, þótt hann taki það fram, að hann höggvi ekki að neinum sérstak- lega. Að trúarlífið sé að fara í „kaldakol" í Hofteigsprestakalli, virðist læknirinn, meðal annars, marka á því, að fólk þar kunni ekki kirkjusiði. Staðarhaldari Hofteigs og bróðir hans sögðu mer, að eftir erindaflutning leiðangursmanna í kirkjunni hefði orðið nokkur umræða um vankunnáttu safnaðarins í kirkju- siðum. Hafði einhverjum orðið það á í messunni, að standa ekki upp samkvæmt helgisiðum þjóðkirkjunnar. Fannst ýmsum fátt um þessa athugasemd leiðangursmanna. Ég var þeim sam- mála, og taldi líklegt, að við lokauppgjör yrði frekar spurt um kristinn sið en kirkjusið. Og ég get fullvissað lækninn um það, þann sið kunna menn engu ver í Norður-Múlaprófastsdæmi en öðrum prófastsdæmum landsins. Jafnframt þessu vil ég vin- samlegast benda lækninum á að lesa vandlega n. Mós. 23, 17. f’ar segir svo: „Þrem sinnum á ári skal allt þitt karlkyn birt- ast frammi fyrir Drottni.“ Þetta stendur skrifað í hinu „heil- aga orði“, sem læknirinn mun ekki efast um að sé Guðs orð. Ekki virðist þar vera vart nokkurs ótta við aftrúun, þótt fólkið komi ekki oftar saman. Vert er að veita því athygli, að ekkert er tekið fram um það, hversu oft konur eigi að koma fram fyrir Drottin. Ef til vill veit læknirinn það, þótt Ritningin geti ekki neitt um það. Um konur munu fá ummæli vera til, sam- kvæmt Ritningunni, önnur en þau, að þær eigi að láta sem mlnnst á sér bera við safnaðarguðsþjónustur og helzt eigi þær að vera með hjúpuðu andliti, ef þær birtist þar. Þótt læknirinn telji sig ekki geta dæmt um trú manna í þess- 11111 landshluta, enda skoði rangt að gjöra það, þá hikar hann fró ekki við að varpa dómi. Á öllu svæðinu finnur hann einn trúaðan mann. Er það sóknarpresturinn í Skeggjastaðapresta- kaUi, séra Sigmar Torfason. Ekki veit ég, með hvaða geislum kann hefir gegnumlýst sál hans svo, að hann geti byggt dóm Slnn á vísindalegum grundvelli. Eitt veit ég, að séra Sigmar er góður og vandaður maður. En um trú hans get ég ekkert sagt fremur en um trú annarra manna. En eitt er alveg víst, að hefði séra Sigmar verið í sporum Dr. Árna Ámasonar og átt að skrifa hliðstæða ferðasögu, þá hefði hún verið með öðrum SviP og anda en ferðasaga doktorsins.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.