Kirkjuritið - 01.05.1957, Blaðsíða 6

Kirkjuritið - 01.05.1957, Blaðsíða 6
Sfá, þar er maðurinn „Sjá, þar er maðurinn." Það bendir oss ekki aðeins á Jesú, það merkir ekki einungis þetta: Sjáið þennan mann, sem bíður dóms síns frammi fyrir Pílatusi, heldur getur það engu síður þýtt þetta: Sjáið manninn, mannveruna, þennan ein- stakling hins hrjáða mannkyns. Sjáðu mig, sjáðu þig. — Og manninn fáum vér sannarlega séð, meðan vér fylgjum Jesú á þjáningargöngu hans. Og hér er ekki um það að ræða, að vér grandskoðum einvörðungu þá Júdas og Pétur og æðstu prest- ana og öldungana, Pílatus og Heródes og hermennina siðlausu og trylltan múginn, heldur skyldum vér líta til vor sjálfra, renna augunum í eigin barm. Hvar erum vér stödd í þessum hópi? Hvernig er oss sjálfum farið? Hverjum líkjumst vér helzt þeirra, sem verða á vegi vorum, er vér fylgjum Jesú á píslar- göngu hans. Erum vér hætinu betri en prestarnir og farísearnir sjálfumglöðu? Betri en Pílatus, sem að vísu þekkir sannleik- ann, en brestur manndóm til að fylgja honum eftir: Vinnur það þó fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans? Betri en Heródes, sem skortir þrek til að taka ábyrgðina á sig? Betri en hermennirnir, sem gegna fyrirskipunum í blindni? Betri en Pétur, sem afneitar, þegar drottinn þarf næst á örvun og stað- festu að halda, en snýr seinna frá villu síns vegar? Betri en sá, er svíkur, en örvæntir svo, að trú hans bregzt og hann fær ekki eygt nokkra von? Kannski þurfum vér á þessari áminningu að halda: Sjá, þar er maðurinn. En hvað um það, vísast erum vér einnig þeir, sem beðið er fyrir: Faðir, fyrirgef þeim, því að þeir vita ekki hvað þeir gjöra. Eða vorum vér kannski ekki í þessum hópi, sem minnzt var á? Ef til vill hefir þú ekki komið auga á sjálfan þig, getur ver- ið, að þar hafi ekki svo mikið sem brugðið fyrir svip þínum.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.