Kirkjuritið - 01.05.1957, Blaðsíða 44
234
KIEKJUHXTXÐ
-10. NÓVEMBER -
Tvær lúterskar kirkjur, stjórnarhús kirkjunnar, bókasafn og svefnhús
guðfræðistúdenta í Búdapest verða fyrir miklum skemmdum.
-13. NÓVEMBER -
Fyrstu beinu fréttirnar um Ordass biskup frá því 2. nóvember berast
til Genf, svo hljóðandi: Biskup og fjölskylda heil á húfi.
-16. NÓVEMBER -
Ordass biskup skýrir frá því, að ekki séu lagðar liömlur á kirkjustarf-
ið: „Guðsþjónustur eru haldnar tálmunarlaust .... eftir mörg ár er oss
leyft að stíga fæti inn í sjúkrahús .... Vér höfum hvarvetna hafið
ókeypis kennslu í kristnum fræðum. Það er enn óráðin gáta, livað verður
i landi voru .... Sendið ekki vörur til hjálpar, nema tryggt sé, að .oss
berist sú hjálp.
- 29. NÓVEMBER -
Fyrsta símtalið milli Genf og Búdapest er afgreitt. Dr. Lund-Quist
talar nokkar mínútur við Ordass biskup. Biskupinn bað um stöðugar
fyrirbænir.
(A. C. þýcldi úr shjrslu Lúterska heimssatnbandsins).
Staka.
Guðdóms skartar geisli hreinn
gegnum svartar nætur,
hann svo bjartur yljar einn
inn í hjartarætur.
Hjálmar frá Hofi.
* í'í *
Það ríður á því að vera góður, — ekki aðeins á því að vera ekki
vondur. — Úr Skátabók.