Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1957, Qupperneq 28

Kirkjuritið - 01.05.1957, Qupperneq 28
218 KIRKJURITIÐ Það eru ekki til neinir eldri máldagar fyrir Holtastaðakirkju en frá 1360, það er máldagi Jóns Eiríkssonar skalla, þar eru kirkjueignirnar þær sömu og alltaf hafa verið. 1297 þegar sættin verður um Staðamálin, milli Árna biskups og kirkjueigenda, þá á Holtastaðakirkja ekkert í heimalandi staðar, enda hefir aldrei átt það. Deilan um Staðamálin var með- al annars um það, að biskupar héldu því fram, að ef kirkjan ætti ekki fasteignir, gætu kirkjueigendur eytt svo fé kirkjunnar, að þeir gætu ekki byggt kirkjuna upp, þegar þess þyrfti. Varð svo að sætt, að allir kirkjueigendur, þar sem kirkjan átti minna en helming í heimalandi staðar, skyldu eiga kirkjuna áfram. en setja eina eða fleiri jarðir að veði fyrir því að geta byggt upp kirkjurnar. Þessar jarðir voru svo kallaðar kirkjujarðir og stundum kirkjueignir. Mátti aldrei slíta þessar jarðir sundur. Eignuðust því erfingjar oft helming, 1/3 eða 1/4 úr öllum jörðunum. Aftur á móti ef kirkjan átti helming eða meira í heimalandi staðar, þá átti kirkjan sjálf að eignast allan staðinn. Næst er máldagi Ólafs biskups Rögnvaldssonar frá 1461, þar eru kirkjujarðirnar taldar þær sömu og hjá Jóni, þ. e. Kirkju- skarð, Hvammur, Hamraland (síðar Hamrakot), hálfur Kag- aðarhóll, Holtastaðareitur og ýmis ítök. Síðan eru svo lög- festur fyrir rekaítaki á Skaga (Depli), hálfri selveiði í Blöndu- ósi, allri veiði í Hnjúkasíki og skógarítaki, er nefnist Kálfeyri í Blöndugili fyrir framan Rugludal. Þetta þótti sumt mikilsvert þá, en er nú lítils virði. Hve lengi Holtastaðir hafa verið í eigu afkomenda Holta landnámsmanns, vita menn ekki. Samkvæmt sögu Lárentíusar biskups býr hér á fyrri hluta 14. aldar Guðrún Þorsteinsdóttir, ekkja Kolbeins riddara Auðkýlings, og svo Þorsteinn sonur hennar. Síðar eignast Jón Eiríksson skalli Holtastaðaeignina en átti hana stutt. Löngu síðar eða 1529 eignast Ari sonur Jóns biskups Ara- sonar jarðirnar, er selur þær Páli Grímssyni sýslumanni 1586, og býr hann hér í nokkur ár. Svo kaupir Jón Björnsson sýslu-

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.