Kirkjuritið - 01.05.1957, Blaðsíða 26
216
KIRKJURITIÐ
Ég læt lesendum það svo eftir að svara spumingunni, er fram
var sett hér að framan, spurningunni um það, hvort óhugsandi
sé, að eitthvert samband sé á milli skjótfengins auðs okkar ís-
lendinga og skeytingarleysis um andleg mál. Hvað virðist yður?
Þorbergur Kristjánsson.
AÐALFUMDUR
Prcstafólagrs íslands
verður haldinn 19. júní í sumar á Þingvöllum. Sam-
tímis verður aðalfundur prestakvennafélags íslands.
Hefjast fundirnir með guðsþjónustu í Þingvalla-
kirkju kl. 10 árdegis. Þar prédikar séra Þorbergur
Kristjánsson í Bolungarvík, en séra Bjarni Sigurðs-
son á Mosfelli þjónar fyrir altari.
Þá verður fluttur guðfræðilegur fyrirlestur.
Aðalumræðuefni prestafundarins verður liagnýt-
ing prestssetursjarðanna, og verða frummælendur
prófastarnir, séra Sigurjón Guðjónsson í Saurbæ og
séra Sveinbjörn Högnason á Breiðabólstað. Að lokn-
um fundarstörfum í báðum félögunum fer fram sam-
eiginleg kvöldvaka; ræðuhöld, frásagnir, upplestur
og söngur.
Nánari upplýsingar um báða fundina munu koma
síðar í blöðum og útvarpi.
STJÓRNIN.
V