Kirkjuritið - 01.05.1957, Page 9

Kirkjuritið - 01.05.1957, Page 9
PTSTL5R v_________/ Fermingin. Fermingarkyrtlarnir verða æ algengari um land allt og eru bæði til prýðis og spamaðar. Farið er að impra á, að kirkju- kórar taki líka upp skikkjur, eins og tíðkast víða erlendis, og þegar á sér stað í hinni nýju Neskirkju. Það er ekki kostnaðar- samt, en gerir helgiathöfnina hátíðlegri. En vandamál fermingarinnar em ekki öll leyst með kyrtl- unum. Fermingarveizlurnar og fermingargjafirnar fara áreið- anlega stundum fram úr hófi, gera jafnvel sumum foreldrum illkleyft að láta ferma börn sín. Það er ískyggileg öfugþróun, að samhliða því að margir virðast hafa minni skilning á gildi kirkjulegra hátíða, vex prjálið og kostnaðurinn í sambandi við þær æ meira úr hófi. Jólin og fermingin, sem að réttu lagi eiga að vera mestu fagnaðarhátíðir einstaklinga og fjölskyldna, valda vaxandi áhyggjum og þreytandi umsvifum, — stundum gremju. Páskarnir eru hins vegar að snúast upp í íþróttakeppni, en hvítasunnan að heltast úr lestinni sem stórhátíð. Forráðamenn kirkjunnar verða að taka hér á einhvem hátt 1 taumana og færa þetta á ný til betri vegar. Og sennilega er bezt að byrja á fermingunni. Fyrst er skylt að hefjast handa um það, sem oss kirkjunnar mönnum er hendi næst, og samræma meira fermingarundir- búninginn, eins og ég hefi oftar að vikið. Þetta er þeim mun brýnna sem vitað er og viðurkennt, að kristileg fræðsla og kristilegt uppeldi heimila og skóla er nú sundurleitara og í 'Tieiri molum en áður. Fermingin er, eins og öllum ætti að vera vitanlegt, fullnaðar mntaka barnanna í kristna kirkju, og hvorki æskilegt né eðlilegt,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.