Kirkjuritið - 01.05.1957, Page 16
NESKIRKJA
Neskirkja í Reykjavík var vígð á pálmasunnudag af biskupi
íslands, herra Ásmundi Guðmundssyni. Sóknarpresturinn séra
Jón Thorarensen prédikaði. Aðstoðarprestar við kirkjuvígsluna
voru Jón Auðuns dómprófastur, Björn Magnússon prófessor,
séra Gunnar Árnason og séra Jakob Jónsson. Talið var, að á
áttunda hundrað manns væri viðstatt þ. á. meðal kirkjumála-
ráðherrann Hermann Jónasson og borgarstjórinn í Reykjavík,
Gunnar Thoroddsen.
Ýmsir hafa lagt ötullega hönd á plóginn til að hrinda málinu
fram, og eru þar fremstir í flokki sóknarpresturinn, Stefán Jóns-
son skrifstofustjóri, formaður safnaðarnefndar, og Einvarður
Hallvarðsson skrifstofustjóri, gjaldkeri nefndarinnar. Kvenfélag
safnaðarins hefir lagt mjög mikið að mörkum.
Kirkjuna teiknaði Ágúst Pálsson húsameistari. Ekki eru allir
ásáttir um gerð hennar né fegurð, en óneitanlega veitir hún
presti og söfnuði ágæt starfsskilyrði. Af því sem með ágætum
má telja eru auk hliðarsalarins sætin í kirkjusal, sem bæði eru
smekkleg og hentug, íslenzkum iðnaði til sóma.
Það setti sinn svip á guðsþjónustuna, að kórinn, en organisti
er Jón ísleifsson, söng í smekklegum kórkápum.
Hér á eftir fer hluti af erindi Stefáns Jónssonar skrifstofu-
stjóra, er hann hélt í boði safnaðarnefndarinnar 7. apríl.
„Grunnflötur kirkjunnar er 550 ferm. Skiptist hann þannig:
Kirkjusalur 446 ferm. og hliðarbygging (félagsheimili) 106 ferm.
Lengd hússins er 32 metrar og breidd 24 metrar. Mesta hæð
í kór er 16 m., en í kirkjuskipi 12,7 m.
Kirkjan er úr járnbentri steinsteypu og húðuð utan með hvít-
um marmara. Þak er klætt með kopar og tvöfalt gler í glugg-
um. í hinum stóra kórglugga er litað gler, sem breytir dags-