Kirkjuritið - 01.05.1957, Blaðsíða 30
220
KIRKJURITIÐ
Fleiri merkilegir kirkjugripir munu vera frá Jóni Björns-
syni og afkomendum hans; þess er getið í kirkjuskoðun, að Jón
hafi gefið kirkjunni kaleik úr silfri, gylltan, og fullvíst má telja,
að stærri kirkjuklukkan sé frá honum, því að á henni stendur
ártalið 1588, en það er á þeim árum er Jón býr hér.
Síðasti afkomandi þessarar ættar, er sat Holtastaði, var séra
Jón Bjamason (Sigurðssonar Árnasonar Oddssonar). Hann varð
bráðkvaddur í bæjardyrunum á Holtastöðum 1746. Kom hann
frá því að messa (líklega í Blöndudalshólum). Settist á kistu
í dyrunum, og bað að gefa sér að drekka. Drakk nokkra sopa,
og hné svo út af. Sagt er, að hann hafi mælt um leið: „Illa er
nú við skilið“. Var talið, að draugur (sending) hefði orðið hon-
um að bana.
Kona séra Jóns hét Þuríður Einarsdóttir, og bjó hún æði-
lengi eftir þetta á Holtastöðum. Dætrum séra Jóns féllst svo
mikið um dauða föður síns, að þær urðu geðveikar. Lifði önn-
ur þeirra, Helga, fá ár, en Elín lifði lengi, fékk hún æðiköst,
fór Jiá stundum upp fyrir tún, og velti eða henti grjóti ofan í
túnið. Á milli var hún almennileg. Hún var dulræn og fjar-
sýn. Sagði t. d. alltaf, hvað Erlendi Guðmundssyni á Holta-
stöðum leið, þegar hann hraktist af Skaga austur á Flateyjar-
dal í Þingeyjarsýslu. Virtist hún allt af sjá til þeirra, og sagði
fólkinu jafnharðan, hvar þeir voru, og reyndist það allt rétt,
þá Erlendur kom heim.
Nokkru eftir Jón prest Bjarnason varð liér prestur Jón
Jónsson, er kallaður var hinn „litli“, mun hann hafa setið í
Blöndudalshólum, enda var það prestssetrið. Sagt er, að Þuríði
húsfreyju hafi þótt hann bera illa messuklæðin, og skar hún
neðan af þeim, og sagði að betra væri að gefa fátækum, en
að þau drægjust í skarn niður. Erlendur Guðmundsson mun hafa
flutzt hingað til Holtastaða 1788 eða ’89. Samkvæmt kirkju-
skoðun á Holtastöðum 20. júní 1789 er sagt frá því, að hann
sé orðinn eigandi að Holtastaðaeigninni samkvæmt samningi
frá 21. janúar 1789, gegn því að annast Elínu Jónsdóttur meðan
hún lifði, og sennilega hefir hann átt að sjá um Þuríði prests-
konu líka, ef með þyrfti. Erlendur Guðmundsson hefir endur-