Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1957, Qupperneq 31

Kirkjuritið - 01.05.1957, Qupperneq 31
HOLTASTAÐAKIRKJA 221 byggt kirkjuna 1792—’93. Kostaði sú bygging 251 Rd. og 70 skildinga. Komst þá kirkjan í skuld um 55 Rd. og 31 sk. Þá er smíðaður prédikunarstóll sá, sem nú er í kirkjunni. Þessi kirkja stendur ekki nema 40 ár eða til 1833. Þá lætur Pálmi Jónsson í Sóllieimum, tengdasonur Erlendar Guðmundssonar, byggja nýja kirkju. Yfirsmiður að þeirri kirkju var Klemens í Bólstaðarhlíð afi Klemensar, sem til skamms tíma hefir búið í Bólstaðarhlíð. Man ég vel þá kirkju. Var grafið á fjöl yfir kirkjudyrum: „Holtastaðakirkja byggð 1833.“ Þar fyrir neðan var fjöl máluð svört og á hana skrifað með hvítri málningu versið: Þá þú gengur í Guðs hús inn“ o. s. frv. Kirkja þessi var með torfveggjuin á hliðum og torfþaki, en timburstöfnum. Voru tveir æði stórir gluggar á austurstafni, enda er þess getið við kirkjuskoðun, að settir hafi verið nýir og stærri gluggar í kirkjuna en upphaflega voru, og gerði það Jón Guðmundsson afi minn. Framan við kirkjudyrnar var burst- mynduð bygging mjög lítil, héngu þar kirkjuklukkurnar, og var það kallað klukknaport. Var einn gluggi (eitt fag) sinn hvorum megin við klukknaportið á framstafni kirkjunnar. Var því skuggsýnt í framkirkjunni, þó að lítill gluggi væri á þaki yfir prédikunarstól. Holtastaðakirkja frá 1833 var ekki ósvipuð Víðimýrarkirkju, nema hún var miklu hærri og veglegri. Þil í brjósthæð var á milli kórs og framkirkju. Var útskurður (eða útsögun) ofan á því, og hann málaður blár og hvítur. Fyrir framan þetta þil voru stúkur fyrir heldri konur. Voru þær skildar frá framkirkju með þili í svipaðri hæð, og þar ofan á mjóar útskornar fjalir, bka málaðar hvítar og bláar. í þessum stúkum var einn bekk- ui' í miðju og tveir til hliðanna. Að öðru var öll kirkjan ómáluð. Brédikunarstóllinn úr gömlu kirkjunni (frá 1793) var í skilrúm- inu milli kórs og framkirkju. Kirkja þessi stóð til 1893, að rif- inn var 1/3 af henni, og eftir það stóð hún sem geymsluhús til 1915, að ég lét rífa hana. Hún stóð liér rétt fyrir sunnan °g neðan íbúðarhúsið. í kringum þá kirkju var hringlagaður kirkjugarður, svo var annar garður fyrir ofan hann, þar sem

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.