Kirkjuritið - 01.05.1957, Side 50
240
KIRKJITRITIÐ
Æskulýðsíundur. í Borgarbíó á Akureyri var lialdinn almennur
kristilegur æskulýðsfundur með fjölbreyttri dagskrá og mikilli þátttöku.
Hann var á vegum Æskulýðsfélags Akureyrarkirkju, og eru nú tíu ár
liðin síðan fyrsti fundurinn var haldinn í Skjaldborg, félagsheimili templ-
ara. Lúðrasveit Akureyrar lék undir stjóm Jakobs Tryggvasonar organ-
ista kirkjunnar, sem einnig lék undir almennan söng. — Einsöngvarar
vom hinir þjóðkunnu söngvarar, Jóhann Konráðsson og Sverrir Pálsson.
Séra Kristján Róbertsson setti fundinn, en fundarstjóri var séra Pétur
Sigurgeirsson. Aðalræðuna flutti séra Sigurður Haukur Guðjónsson prest-
ur á Hálsi, en ávörp Ásta Einarsdóttir og Gunnlaugur Guðmundsson. —
Gagnfræðaskólakórinn söng undir stjórn Áskels Jónssonar, og sýndur var
þáttur úr kvikmyndinni: Marteinn Lúther.
P. S.
Hálfrar aldar afmæli Patreksfjarðarkirkju var haldið sunnudag-
inn 19. maí, sem var vígsludagur kirkjunnar. Undirbúningur allur undir
þessa hátíð var með ágætum. Hefir áður verið skýrt frá gagngerri endur-
bót, sem fór fram á kirkjunni, og nýju pípuorgeli hennar. Kvenfélagið
Sif gaf steintígla (mosaik) myndir á prédikunarstól kirkjunnar. Og ýmsar
fleiri gjafir bárust. Hátíðaguðsþjónusta fór fram í kirkjunni að viðstödd-
um biskupi, prófasti og fjómm prestum öðrum og miklu fjölmenni. Séra
Grímur Grímsson og séra Kári Valsson þjónuðu fyrir altari á undan pré-
dikun. Biskup prédikaði. Sóknarpresturinn séra Tómas Guðmundsson
rakti sögu kirkjunnar. Formaður sóknamefndar, Árni Magnússon, skýrði
frá gjöfum til kirkjunnar. Biskup og prófastur þjónuðu á eftir fyrir altari.
Kirkjukór 20—30 manna söng undir stjórn Steingríms Sigfússonar organ-
leikara. Að messu lokinni var kirkjugestum boðið til veglegs samkvæmis
og þar veitt af mikilli rausn. Margar ræður voru fluttar þar. M. a. tók
til máls séra Magnús ’Þorsteinsson, fyrsti presturinn, sem búsettur
var á Patreksfirði. Kvöldið áður var ágætur samsöngur í kirkjunni.
Leiðrétting á bls. 127, 6. 1. a. o.: Athafnir, les: Afturför.
KIRKJURITIÐ
kemur út 10 sinnum á ári. — Verð kr. 35.00.
Afgreiðsla hjá Elísabetu Helgadóttur, Ilringbraut 44. Sími 4776.