Kirkjuritið - 01.10.1959, Page 36
Tillögur
samþykktar á Synodus 1959.
I. Prestastefnan hvetur presta til að efna til kirkjuvikuhalds,
og leggur til, að gefnar verði út að tilhlutun biskups leið-
beiningar um undirbúning og uppbyggingu slíkrar starf-
semi.
II. Prestastefnan fagnar þeirri þróun, sem orðið hefir í skóla-
málum á síðustu árum, að meiri samvinna hefir tekizt a
milli kennara og skólanefnda annars vegar og presta hins
vegar, og prestar annast meir kristindómskennslu í skól-
um en áður var, og væntir þess, að áframhald verði a
þeirri þróun.
III. Prestastefnan telur nauðsynlegt, að guðfræðinemar eigi 1
háskólanum kost á nokkrum undirbúningi undir störf að
félagsmálum og líknarmálum.
IV. Prestastefnan telur brýna þörf þess, að fjárframlög til
Kirkjubyggingarsjóðs verði a. m. k. ein milljón króna a
ári, og skorar á Alþingi að verða við þeirri ósk.
V. Prestastefnan skorar á Alþingi að afgreiða sem fyrst frum-
varp það um kirkjugarða, er fyrir því hefir legið tvö und-
anfarin þing.
VI. Prestastefnan skorar á ríkisstjórn og Alþingi að hækka
f járveitingu til byggingar prestsseturshúsa, miðað við það>
að fjögur verði reist á ári, svo sem upphaflega var til
ætlazt. Fjárveiting til viðgerða á prestsseturshúsum hækki
einnig að miklum mun, svo og til byggingar útihúsa.
VII. Prestastefnan telur æskilegt, að kristilegur skóli og sum-
arbúðir verði reistar í Skálholti, og felur æskulýðsnefnd
að vinna áfram að framgangi málsins í samráði við biskup
íslands.