Kirkjuritið - 01.10.1959, Side 40
374
KIRKJURITIÐ
Deildarforingjar í œskulýÍSsfélagi Akureyrarkirkju.
TaliS frá vinstri: Björn Arason, fyrir drengjadeild, lngimar Eydal, fynr
a'Saldcild, Ásta SigurSardóttir, fyrir stúlknadeild.
Undirbúningur.
Reyndar var ekki hægt að svo komnu að tileinka sér allt, er
snerti undirbúning vikunnar. Og á hverjum stað verður að
byggja starfið upp eftir eigin staðháttum.
Eitt var það t. d., sem séra Harald sagði: Fáið sama ræðu-
manninn fyrir alla vikuna. Reynslan hjá honum hafði sýnt kosti
þess mjög greinilega.
Endirinn varð þó sá, að við kusum heldur að hafa marga
ræðumenn eða tvo á hverju kvöldi, prest og leikmann.
Um þetta veit ég að verða skiptar skoðanir, en hér á eftir
að reyna, hvað á við um íslenzka staðhætti, hvor leiðin sé betri.
Eftir að kirkjuvikumálið hafði verið rætt í sóknarnefnd og
á safnaðarfundi, var valinn sérstakur maður til þess að sjá um
nauðsynlegan undirbúning. Starfaði hann í samráði við formann
sóknarnefndar og sóknarpresta.
Reynt var að upplýsa fólk eftir föngum, hvað hér væri um
að vera. Og daginn fyrir kirkjuvikuna var sérstök tilhögunar-
skrá borin út um bæinn. Með skránni fékk almenningur kost a
að kynna sér, hvernig vikan hafði verið skipulögð frá degi til
dags.