Kirkjuritið - 01.01.1966, Síða 20
14
KIRKJURITIÐ
liefði ekkert fé til að greiða kostnað, sem af þeim leiddi. Amt-
maður studdi það, svo að meðmæli biskups með mér komu ekki
að haldi. Sr. Jóhann Þorkelsson, sagði mér að meðhjálparinn
hefði talað um að liann mundi ekki lesa bæn úr kórdyrum við
þessar samkomur, „En éo; svaraði“, sagði sr. Jóliann, „að ég
væri sjálfur fús að lesa bænina“. En þær féllu niður „af fé-
leysi“. En þá flutti ég tíðar samkomur annars staðar í bænum.
Svo tóku við sumarferðir mínar um Island, prédikanir smám
saman í yfir 100 kirkjum og heimsóknir til flestra presta Is-
lands, — að ógleymdum ferðalögum mínum 4. og 5. livert ár
til ýmsra landa. Þær voru mér til óinetanlegrar endurnæringar
í trúarlegu tilliti, — einkum þegar konan mín gat orðið sam-
ferða.
Hverju hefur þér veriS mest ánaigja aS vinna aS?
Ferðalögunum á sumrin og tíðum heimsóknum til sorgar-
lieimila á vetrum, meðan lieilsa mín leyfði. Síðustu árin eru það
altarisgöngur á Ellilieimilinu Grund, þar sem altarisgestum
liefir fjölgað smám saman miklu meira lilutfallslega en dæmi
eru til liérlendis. Fyrsta prestskaparár rnitt 1943, voru þeir
gestir 72, árið 1956: 1004, árið, sem leið: 2296 alls, enda þótt
ég gæti ekki tekið beinan þátt í prestsstarfi þar um 3 mán-
uði vegna veikinda minna. Sjálfhoðaliðar — bæði prestar og
leikmenn, voru svo margir — í mörg ár, og þó fyrst og fremst
Ólafur Ólafsson, kristnihoði, sem lengi liefir verið mín hægri
liönd við allt starf mitt á Elliheimilinu.
Viltu fœra tíSasönginn í forna mynd?
Hefi ekki „söngeyra“, og er því ófær að svara þessari spurn-
ingu ákveðið. Samt finnst mér fremur ólíklegt að guðsþjón-
ustur yrðu áhrifameiri þótt tíðasöngur væri fluttur til liðinna
alda. — Það þarf að rista miklu dýpra og í liverri stólræðu
miklu meiri vitnisburð en nú er almennt. Svipað er að segja
um blaðalestur presta, þótt ekki sé um liann spurt. Mér hefir
aldrei fallið liann af ýmsum ástæðum, og finnst hreint ófært,
þegar prestar þurfa að lesa upp skrifaðar bænir á stól. — En
það þarf einnig að „rista dýpra“, til að gjöra ræðu áhrifaríka.