Kirkjuritið - 01.01.1966, Blaðsíða 38
32
KIRKJURITIÐ
Sóknarnefnd Háteigssóknar er nú þannig skipuð:
Þorbjörn Jóhannesson, form.
Guðmundur Halldórsson, gjaldk.
Guðmundur J óhannesson
Gunnlaugur J. Briem
Halldóra Sigfúsdóttir
Vígsludagur Háteigskirkju var fagnaðardagur í söfnuðinum,
sem nú liefir eignast fagran lielgidóm. Að vísu er kirkjan ekki
að fullu lokið, en bráðlega verður að því unnið, sem eftir er.
Sóknarnefnd hefir gert ráðstafanir til að fá til kirkjunnar mik-
ið og vandað pípuorgel frá Þýzkalandi (Steinmayer), en þar
til það kemur, eftir 3 ár, liefir söfnuðurinn að láni ókeypis
frá orgelverksmiðjunni lítið pípuorgel.
Klukkur liefir kirkjan ekki eignast ennþá, en vonandi koma
þær fljótlega, og er að því unnið.
Safnaðarhús til félagsstarfsemi og fundalialda er ráðgert
norðan við kirkjuna, tengt lienni ineð gangi á milli.
J.Þ.
Háteigskirkja.