Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1966, Qupperneq 52

Kirkjuritið - 01.01.1966, Qupperneq 52
KIRKJURITIÐ 46 miklar skuldir, sem væutaulega verða greiddar á uæstu árum. A þessum tímamótum eiga forráðamenn kirkjunnar þá einlægu ósk, að' hún megi áfram þjóna hlutverki sínu til heilla fyrir hæjarfélagið. Nú er ekki síður þörf á kirkjunnar starfi en fyrir 25 árum. Þeir, sem reistu kirkjuna og þeir, sem í aldarfjórðung hafa unnið fjölþætt safnaðarstarf, eiga miklar þakkir skyldar, virðing og þakklæti er vottuð þeim sem Iátizt liafa. Fram til komandi tíma er horft með hæn í liuga: GEF AÐ BLÓMGIST, GUÐ, ÞÍN KIRKJA. P.S. HéraSsjundur Húnavatnsprójastdœmis var haldinn í Höfðakaupstað sunnu- daginn 5. septemher. Hófst liann með guðsþjónustu í Hólaneskirkju kl. 2. Sr. Gísli Kolheins á Melstað predikaði, en sóknarprestur, sr. Pctur Þ. Ingj- aldsson, þjónaði fyrir altari. Kirkjukórinn söng undir stjórn Kristjáns Iljartarsonar. I lok messugjörðar minntist sóknarprestur þess, að nýr ljósa- kross liefði verið gefinn kirkjunni af sóknarbörnum, og yrði nú kveikt á honum þennan dag. Eftir messugjörð setti prófastur, sr. Þorsteinn B. Gísla- son, héraðsfundinn. Flutti hann ítarlega yfirlitsræðu um kirkjulega viðburði á liðnu ári. Gat þess meðal annars, að miklar umbætur færu nú fram á Breiðahólsstaðarkirkju í Vesturhópi, og Vesturhópshólakirkju liefði verið gjört mikið við. Nýtt prestsseturshús hefði nú verið reist á Bólstað í Æsu- staðaprestakalli. Fólkstala liefði heldur aukizl í prófastsdæminu; væri nú 3657 manns. Þá gat prófastur um starf nefndar þeirrar, er skipuð hefði verið til að atliuga prestakallaskipan landsins. Að loknu máli prófasls var gefið fundarhlé. Sátu fundarmenn kaffihoð hjá sóknarnefnd Hólanesskirkju, en Kl. 5 var fundur settur að nýju, og urðu þá umr. um sameiningu presta- kallanna Breiðahólsstaðar og Tjarnar, sem koniið hefði til orða. Urðu um það nokkrar umræður. Þá hófust umræður um kirkjugarða, er var aðalmál fundarins, er var mikið rætt og voru samþykktar þessar ályktanir: Héraðsfundur Húnavatnsprófastsæmis, haldinn 5. september 1965 í Höfða- kaupstað, fagnar því að skipaður hefur verið eftirlitsmaður fyrir kirkju- garða landsins. Hins vegar er augljóst að ef kirkjugarðar í kauptúnum og sveitum landsins eiga að komast í viðunandi horf, þarf maður í hverju prestakalli að annast um þá. Væri þá æskilegt að liann hefði einhverja niemitmi í garðrækt og gæli auk þess séð mu slátt á görðunum. Héraðsfundur Húnavatnsprófastsdæmis, haldinn 5. septemher 1965 í Ilöfðakaupstað, heinir þeim tilmælum til biskups og kirkjmnálaráðuneytis- ins, hvort ekki sé fært að liafa námskeið í garðrækt fyrir þá aðila, sem tækju að sér hirðingu kirkjugarðanna út um hyggðir landsins. Fundurinn vill benda á Húsmæðraskólann á Löngumýri eða cinhvern annan stað, þar sein ekki er jarðhiti. Séra Gísli Kolbeins flutti erindi um fund guðfræðinga, íslenzkra og er- lendra, er nýverið var haldinn í Reykjavík. Síðan lauk sr. Þorsteinn B- Gíslasonar, prófastur, funduin, með ritningarlestri og hænargjörð. Héldu fundarmenn síðan til prestssetursins, en þar þágu þeir kvöldverð í hoði prestshjónanna. — P. t.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.