Kirkjuritið - 01.01.1967, Síða 11
KIRKJURITIÐ
5
var hættuleg menningunni, liún var Iiáskaleg fyrir öreigana,
liun var ólioll ríkinu. En það kom fyrir ekki. Þótt hnefinn
væri hafinn á loft fékk h ann ekki stöðvað daginn. Þótt lær-
dómurinn og spekin upplyftu sínum ásjónum mót heimskunni,
því hneyksli og þeirri lieimsku, sem orð krossins var kallað,
varð hún ekki kveðin niður. Það fór þvert á móti eins og í
þjóðsögum segir, þegar tröllin, sem ekki þoldu dag, formæltu
döguninni: Sólin varð ekki slökkt, deginum varð ekki snúið
aftur, en tröllin urðu að steini, hinn reiddi lirammur varð að
storknuðu skrípi við veginn, ásjónur risanna urðu að grettu
grjoti við þann veg, sem sagan hélt fram í skini dagsins, sem
risinn var með Kristi.
Og enn mun sagan lialda áfram og láta allt Ijósfælið risakyn
<“ftir við veginn, meðan dagsbrúnin lyftist, sólin hækkar, Krist*
ur og ríki Iians.
Vakna þú, rís upp, komdu út í daginn.
Þannig talar Guðs orð. Hvert orð frá þeirri kirkju, sem frá
fvrstu stundu lífs þíns hefur viljað rétta þér móðurhönd, er
kall um að vakna til dags og vaka sem á degi. Það orð er þér
ílutt á þessum morgni sem nýársgjöf.
IT.
^'n þuð er ekki alltaf þægilegt að vakna. Páll veit það vel.
TTann hafði reynslu fvrir því. Þegar Ijósið vakti hann varð
hann að endurskoða allt, líf sitt allt, og það var harkaleg end-
urskoðun. Hann veit, að aðrir, sem vakna til dagsins, verða
að sæta líkum kostum að einliverju levti. Nóttin, dimman,
dyhir SVO margt. En allt kemur fram í hirtuna við 1 jósið, segir
Hann nefnir ýmislegt í samhandi við orð textans, ýmislegt,
sem leitar skuggans og nóttinni ann og ljósið flýr og veldur
því að það er óþægilegt að vakna. Hann nefnir frillulífi, sví-
virðilegt hjal, ágirnd, beiskju, reiði, víndrykkju. Og við viui
sma, kristna kirkju í Efesusborg, segir hann: Þér voruð eitt
sinn i myrkri, en nú ernð þér í Ijósi, síðan er þér genguð
Hrottni á hönd og hörn Ijóssins vita hvernig þau eiga að hegða
ser: Ávöxtur Ijóssins er einskær góðvild, réttlæti, sannleikur.
Þeir sem vakna til þess að láta Ivrist lýsa sér, lifa öðruvísi en