Kirkjuritið - 01.12.1968, Síða 16

Kirkjuritið - 01.12.1968, Síða 16
478 KIRKJUItlTIÐ stíl. En liann liefur alltaf mikið að segja og er orðfagur og bjartsýnn. Það er sannast sagna að: „að ritningin er hljómlaus, liol og dauð, ef lijarta les ekki í málið.“ Séra Harald Níelsson brast hvorki bihlíuþekkingu né liina heilögu glóð — hjartahitann og sannfæringarkraftinn. Kveikjan var sú sama og harðast knúði postulana til að boða fagnaðarerindið: trúin, — nei, sannfæringin um upP' risuna. Því lét liann straumkast andspyrmmnar, sem hann sætti, ekki fremur brjóta sig, en drangurinn í miðju fljótinu. Eins og alþjóð veit, var prófessor Haraldur Níelsson ásaint Einari H. Kvaran — skáldinu — framlierji sálarrannsóknanna — spiritismans — hér á landi. Einar var ögn fyrri til að liefja merkið og barðist nieð snjallri tungu og slyngum penna ótrauður fyrir þessu málefni á meðan lionum entist aldur. Honum varð mjög mikið ágengt, en séra Haraldi enn meira. Aðstöðuinunurinn réði þar mestu um. Einar lierjaði fyrst og fremst á ritvellinum, en Haraldur með beinni ræðu. Ég lief aldrei komið á miðilsfund, sá eini að ég held af þeim, sem mér voru lengur eða skemur samtíða í guðfræði- deildinni. Það getur líka meira en verið að allir aðrir læri- sveinar séra Haralds liafi sótt slíka fundi einn eða fleiri. Ég get þessa liér aðeins til að undirstrika, að ég þurfti ekki að sækja slíkan fund til að sannfærast um, að livað sem öðru leið, var prófessor Haraldur Níelsson liandviss um að hafa fengið áþreifanlegar og órækar sannanir fyrir framlialdslífinu. Og það var lionum meira virði en nokkuð annað. Bæði sjálfs sín vegna og sem kristnum boðanda. Hann skildi það manna bezt að upprisa Krists er og verður sem í upphafi, hornsteinn og höfuðaflvaki kirkjunnar. Þess vegna taldi liaun lífsnauðsyn, á vaxandi heimshyggju —' og vantrúartímum, og á öld raunvísindanna, að leita nieð hvaða liætti sem unnt væri, staðfestingar á upprisu Krists og þar með sannana fyrir framlialdslífi einstaklingsins. Því beindist liugur lians að sálarrannsóknunum og þau kynni

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.